Þingmenn segja starfslokasamning við ríkislögreglustjóra furðulegan
Helga Vala sagði löngu hafa verið tímabært að Haraldur viki og að því leyti væri starfslokasamningurinn góður.
„En nú hefur hæstvirtur dómsmálaráðherra gert fordæmalaust samkomulag við umræddan embættismann. Samkomulag sem hefur vakið furðu, undrun og jafnvel regin hneykslan um samfélagið,“ sagði Helga Vala.
Hún spurði ráðherra hvort eðlilegt væri að Haraldur leiddi stefnumótunarvinnu um löggæslumál í ráðuneytinu og hvort meðalhófs og jafnræðis hafi verið gætt við ákvörðun um greiðslur til hans.
Dómsmálaráðherra sagði að Haraldur myndi ekki leiða stefnumótunarvinnu, heldur vinna sérstök verkefni þar sem reynsla hans nýttist henni, meðal annars á sviði alþjóða lögreglumála.
„Heldur leiði ég þá vinnu sem fer fram í ráðuneytinu um lögreglumál nú sem áður,“ sagði Áslaug Arna. „Og ég tel já að meðalhófs og jafnræðis hafi verið gætt. Það er auðvitað umdeilanlegt að gera starfslokasamning. Það er auðvitað ekki bæði hægt að hafa ströng lög um opinbera starfsmenn og enga heimild um starfslokasamninga.
Helgi Hrafn tók undir gagnrýni Helgu Völu. Hann sagði eðlilegt að greiða ríkislögreglustjóra laun út skipunartíma hans ef honum hefði verið sagt upp störfum.
„Ef ríkislögreglustjóri sjálfur sagði upp finnst mér skrýtið að hann fái tveggja ára laun. Ofan á það sérverkefni í lögreglumálum í mánuði í viðbót sem mér finnst ekki hafa verið skilgreind mjög vel,“ sagði Helgi Hrafn.
Áslaug Arna áréttaði að það hefði skort á samvinnu og samstarf innan lögreglunnar og þar gæti lögregluráð sem stofnað verði um áramót.
„Ríkislögreglustjóri sagði ekki upp, sagði ekki stöðu sinni lausri. Heldur kom hann að máli við mig um möguleg starfslok og mögulegan starfslokasamning,“ sagði dómsmálaráðherra.
Tengdar fréttir
Óþolandi að pólitísk forréttindastétt lúti öðrum lögmálum
Óboðlegt er að aðrar leikreglur gildi um embættismenn hjá ríkinu en annað vinnandi fólk að sögn formanns VR. Hann fordæmir háa starfslokagreiðslu til ríkislögreglustjóra.
Ríkislögreglustjóri á launum í 24 mánuði eftir að hann hættir
Ríkislögreglustjóri verður í sérverkefnum í dómsmálaráðuneytinu í þrjá mánuði eftir að hann lætur af embætti um áramót
Haraldur fær minnst 31,5 milljón til ársins 2022
Haraldur Johannessen, fráfarandi ríkislögreglustjóri, verður á óskertum launum og starfskjörum sem hann hefur haft til 30. júní 2021. Í kjölfar þess verður hann á biðlaunum til loka sama árs.
Haraldur hættir sem ríkislögreglustjóri
Haraldur Johannessen hættir sem ríkislögreglustjóri um áramótin.
Sveitamaður í húð og hár en til í að bjarga málunum í tvo mánuði
Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á Suðurlandi, hefur verið skipaður tímabundið í embætti ríkislögreglustjóra en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, tilkynnti á blaðamannafundi í hádeginu að Haraldur Johannessen hefði sagt af sér.