Viðskipti innlent

Þau sóttu um stöðu hafnar­stjóra Faxa­flóa­hafna

Atli Ísleifsson skrifar
Við Reykjavíkurhöfn.
Við Reykjavíkurhöfn. Vísir/Vilhelm

Alls sóttu 26 manns um starfs hafnarstjóra Faxaflóahafna sem auglýst var um umsóknar í síðasta mánuði. Nýr hafnarstjóri mun taka við stöðunni af Gísla Gíslasyni sem óskaði eftir að láta af störfum í febrúar síðastliðinn.

Listi yfir umsækjendur hefur verið birtur á vef Faxaflóahafna en hæfnisnefnd mun nú annast viðtöl og annan undirbúning tillögugerðar til stjórnar Faxaflóahafna.

„Nú tekur við ferli við að meta og velja úr umsækjendum í samræmi við samþykkt stjórnar á dögunum – undir verkstjórn ráðningarstofu Hagvangs í samvinnu við hæfnisnefndina,“ segir í tilkynningunni.

Að neðan má sjá lista yfir umsækjendur þar sem tiltekinn er núverandi eða þá síðasti vinnuveitandi.

  • Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, fyrrverandi fiskistofustjóri
  • Baldur Steinn Helgason, verkefnisstjóri hjá Jónar Transport
  • Daði Jóhannesson, framkvæmdastjóri Hringrásar
  • Einar Guðmundsson, skipstjóri
  • Erna Kristjánsdóttir, markaðs- og gæðastjóri Faxaflóahafna
  • Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, forstöðumaður hjá Arion banki
  • Frans Páll Sigurðsson, framkvæmdastjóri
  • Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
  • Gunnar Tryggvason, aðstoðarhafnarstjóri Faxaflóahafna
  • Haukur Óskarsson, framkvæmdastjóri Refskeggs ehf.
  • Jóhann F. Helgason, framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá PCC BakkiSilicon hf.
  • Jón Einar Sverrisson, sviðsstjóri hjá Icelandair
  • Kristinn Jón Arnarson, verkefnastjóri hjá Skaginn3X / Skaginn hf
  • Kristinn Uni Unason vélfræðingur
  • Kristófer Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kers
  • Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls
  • Ólafur William Hand ráðgjafi
  • Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar
  • Páll Hermannsson, framkvæmdastjóri hjá Al-Bahar Kuwait Holding
  • Páll Sigvaldason, hópstjóri framleiðslu hjá Völku
  • Reynir Jónsson, sérfræðingur og verkefnastjóri stefnumótunar í umhverfis- og auðlindaráðuneyti
  • Róbert Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá RR ráðgjöf
  • Sigríður Ingvarsdóttir, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
  • Stefán Stefánsson, framkvæmdastjóri verktakasviðs Íslenska gámafélagsins
  • Svavar Halldórsson framkvæmdastjóri/ráðgjafi/háskólakennari
  • Valdimar Björnsson, fjármálastjóri hjá Arctic Adventures

Faxaflóahafnir á og rekur fjórar hafnir - Reykjavíkurhöfn, Grundartangahöfn, Akraneshöfn og Borgarneshöfn. Faxaflóahafnir sf. er sameignarfélag í eigu fimm sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar, Skorradalshrepps og Borgarbyggðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×