Lífið

Áströlsk Youtube-stjarna keypti draumahúsið á Íslandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Amore nýtur lífsins hér á landi.
Amore nýtur lífsins hér á landi.

Ástralska YouTube-stjarnan Sorelle Amore ákvað fyrir ekki svo löngu að fjárfesta í draumahúsi sínu og það hér á Íslandi.

Amore bjó hér á landi fyrir fjórum árum og ætlaði síðan búa víðsvegar um heiminn. Hún bjó í Los Angeles á síðasta ári en ákvað að fjárfesta í draumhúsinu úti á landi hér á Íslandi undir lok síðasta árs.

Í nýju myndbandi frá Amore má sjá hvernig líf hennar og kærastans er hér á landi. Þau búa í fallega timburhúsi á Suðurlandinu og njóta sín greinilega í botn.

Sorelle Amore er með um eina milljón fylgjenda á YouTube og nokkuð vinsæl á þeim vettvangi.

Hér að neðan má sjá hvernig líf parsins er hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.