Dæmdur fyrir stórfellt brot gegn barnsmóður sinni Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 26. maí 2020 17:35 Maðurinn var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir stórfellt brot í nánu sambandi. Vísir/Vilhelm
Maður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi af Héraðsdómi Reykjaness fyrir stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð fyrrverandi maka síns og barnsmóður. Maðurinn hefur ítrekað verið dæmdur fyrir að brjóta gegn henni. Maðurinn hótaði barnsmóður sinni lífláti og öðru ofbeldi með því að hringja í vinkonu konunnar sem hljóðritaði símtalið. Maðurinn hringdi í vinkonuna og krafðist þess að hún hefði samband við barnsmóður hans og skilaði til hennar skilaboðum sem innihéldu hótanir um ofbeldi. Meðal þess sem maðurinn sagði var: „Segðu henni að vera ekki með þetta fokking kjaftæði. Það er ekki ég sem er að eyðileggja þetta allt það er hún, ha. Og hún skal bara fokking koma með drengina í dag eða ég fokking stúta henni, ég er ekki að fokking djóka.“ Í málsgögnum koma fram margar sambærilegar hótanir sem maðurinn lét falla í símtalinu, þar á meðal hótaði hann að berja hana, „snappa“ á hana, að hann vildi drepa hana og svo framvegis. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að hafa brotið gegn nálgunarbanni sem hann var úrskurðaður til að sæta með því að hafa ítrekað haft samband við brotaþola. Hann „potaði“ (e. poked) í hana á Facebook og senti henni fjölda SMS skilaboða í gegn um Internetið sem meðal annars innihéldu líflátshótanir
Dómsmál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira