Hafdís hefur vísað ráðuneytisstjóramálinu til umboðsmanns Alþingis Jakob Bjarnar skrifar 4. júní 2020 14:42 Með skipan Páls Magnússonar í stöðu ráðuneytisstjóra hefur Lilja nú gerst brotleg við jafnréttislög. Yfirmaður jafnréttismála er Katrín Jakobsdóttir. Málið gæti þannig haft áhrif á stjórnarsamstarfið.
Hafdís Helga Ólafsdóttir, skrifstofustjóri hjá forsætisráðuneytinu, íhugar nú stöðu sína eftir að fyrir lá niðurstaða kærunefndar jafnréttismála að á henni hafi verið brotið þegar hún sótti um stöðu ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu. Hún hefur vísað málinu til umboðsmanns Alþingis. Að sögn lögmanns hennar Áslaugar Árnadóttur var það gert þegar í janúar. Ekki er vitað hvenær niðurstöðu er að vænta þaðan en í kjölfar þess verður tekin ákvörðun um hvort gripið verður til þess ráðs að kæra málið. Sökuð um að hygla flokksmanni Talsverður sjór gengur nú yfir Lilju vegna skipunar hennar á Páli Magnússyni flokksbróður hennar í starf ráðuneytisstjóra. Hún er fullum fetum vænd um að hygla flokksgæðingi eftir að kærunefnd jafnréttismála felldi sinn úrskurð nú í vikunni; með ráðningunni braut ráðherra jafnréttislög. Hafdís var að mati nefndarinnar hæfari en Páll. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, er í nokkrum vanda eftir að kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði að brotið hafi verið á Hafdísi Helgu Ólafsdóttur við ráðningu ráðuneytisstjóra.vísir/vilhelm „Við skipun í embætti ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneytinu á síðasta ári var farið eftir niðurstöðum lögbundinnar hæfnisnefndar sbr. 1. mgr. 19. gr. laga um Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011. Hæfnisnefndin var skipuð hæstaréttarlögmanni, fyrrum rektor Háskóla Íslands og sérfræðingi í mannauðsmálum,“ segir í skriflegu svari Lilju D. Alfreðsdóttur menntamálaráðherra við fyrirspurn fréttastofunnar nú fyrr í dag. Treysti niðurstöðu hæfisnefndar Málið kom til tals á Alþingi í morgun og greindi Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra þá frá því að Lilja muni gera frekari grein fyrir málinu á ríkisstjórnarfundi á morgun. Málið er talið grafalvarlegt. Lilja segist hins vegar hafa lagt allt sitt traust á hæfisnefndina. Að sögn Áslaugar Árnadóttur, lögmanns Hafdísar, er málið nú til athugunar hjá umboðsmanni Alþingis. Þegar álit þaðan liggur fyrir verða teknar ákvarðanir um næstu skref. „Við mat hæfnisnefndarinnar og með sjálfstæðu mati ráðherra var horft til málefnalegra sjónarmiða sem fram komu í auglýsingu um embættið. Við sjálfstætt mat ráðherra taldi hann ekki ástæðu til að víkja frá niðurstöðu hæfnisnefndarinnar en eins og fram kemur í skýringum með lögunum þurfa að liggja fyrir veigamiklar, hlutlægar eða málefnalegar ástæður til að víkja frá mati hæfnisnefndar. Því var skipaður ráðuneytisstjóri úr hópi þeirra fjögurra sem metin höfðu verið hæfust, að undangengnum viðtölum. Umsækjendunum fjórum, tveimur konum og tveimur körlum, voru gefnar einkunnir samkvæmt skýru verklagi,“ segir í svari Lilju. Formaður hæfisnefndar trúnaðarmaður Lilju Ríkisútvarpið greindi frá því að formaður hæfisnefndarinnar, lögmaðurinn Einar Hugi Bjarnason hefur notið sérstaks trúnaðar Lilju og gegnir hann formennsku í fjórum nefndum á vegum hennar. Vísir greindi frá áliti Hauks Arnþórssonar stjórnsýslufræðing á þessum gerningi en hann telur að um mjög alvarlegt brot sé að ræða sem snúi að plágu sem gengið hefur ljósum logum í stjórnsýslunni; þar sem samflokksfólki ráðamanna hafi verið hyglað. Haukur telur hins vegar það hvort eitthvað komi út úr þessu ráðast af því til hvaða aðgerða Helga hyggst grípa. Einar Hugi Bjarnason formaður hæfisnefndarinnar nýtur sérstaks trúnaðar Lilju Alfreðsdóttur og gegnir formennsku í nokkrum nefndum á vegum menntamálaráðherra. Áslaug lögmaður segir misskilnings gæta í áliti Hauks hvað það varðar að hægt sé að kæra sig inn í stöður. Það hafi aldrei gerst. Því er bótakrafa eina úrræði þeirra aðila sem í slíku lenda. Eins og öfugsnúið og það kunni að vera, að fá bætur fyrir stöðu sem fólk ekki fær. Gæti truflað ríkisstjórnarsamstarfið Hanna Friðriksson þingmaður Viðreisnar, sem hefur gagnrýnt allan málatilbúnaðinn harðlega, var í viðtali í Harmageddon í vikunni, þar sem hún kom meðal annars inn á þetta. Yfirleitt yrðu engar afleiðingar í málum sem þessu, sem snúa að nepótisma, aðrar en einhver óþægindi fyrir viðkomandi. En stöðurnar væru eftir sem áður í höndum þeirra sem þær voru ætlaðar, flokkshollum einstaklingum og ef til bókagreiðslu kæmi þá þyrfti almenningur, skattgreiðendur, að borga það. „Þannig er þetta. En Hafdís hefur ekki enn tekið afstöðu til þess hvað verður. Hún ætlar að bíða og sjá hvað gerist,“ segir Áslaug. Hún segir að atriði sem umboðsmaður sé að skoða snúi ekki aðeins að mismunun sem var til umfjöllunar hjá kærunefnd jafnréttismála heldur einnig stjórnsýslulegum atriðum. Það sem svo flækir málið enn er staða Hafdísar. Hún er skrifstofustjóri í ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur, sem er yfirmaður jafnréttismála í landinu. Það stendur því upp á hana að finna út úr því hvernig bregðast beri við þessu broti gegn jafnréttislögum. Þannig getur málið haft áhrif á stjórnarsamstarfið. Hvernig er hins vegar erfitt um að segja.
Stjórnsýsla Alþingi Umboðsmaður Alþingis Jafnréttismál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Skipan ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu Tengdar fréttir Telur brot Lilju gagnvart Hafdísi marka tímamót Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur telur að ráðning Lilju á Páli Magnússyni hljóti að hafa afleiðingar. 3. júní 2020 12:21 Menntamálaráðherra braut jafnréttislög við skipan flokksbróður Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að með skipan Páls Magnússonar í embætti ráðuneytisstjóra hafi Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra brotið gegn jafnréttislögum. 2. júní 2020 12:45 Segir líta út fyrir að jafnréttislög hafi verið brotin með ásetningi Kærunefnd jafnréttismála segir menntamálaráðherra hafa brotið á einum umsækjenda um stöðu ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu í fyrra. 2. júní 2020 20:00 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Fleiri fréttir Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Sjá meira
Telur brot Lilju gagnvart Hafdísi marka tímamót Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur telur að ráðning Lilju á Páli Magnússyni hljóti að hafa afleiðingar. 3. júní 2020 12:21
Menntamálaráðherra braut jafnréttislög við skipan flokksbróður Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að með skipan Páls Magnússonar í embætti ráðuneytisstjóra hafi Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra brotið gegn jafnréttislögum. 2. júní 2020 12:45
Segir líta út fyrir að jafnréttislög hafi verið brotin með ásetningi Kærunefnd jafnréttismála segir menntamálaráðherra hafa brotið á einum umsækjenda um stöðu ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu í fyrra. 2. júní 2020 20:00