Gul viðvörun á Austfjörðum og Suðausturlandi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 5. júní 2020 06:46 Kort af vef Veðurstofunnar sem sýnir hvar viðvaranir eru í gildi.
Gul veðurviðvörun er í gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi. Búast má við norðvestan hvassviðri, 15-20 metrum á sekúndu. Eins má búast við sérstaklega snörpum vindhviðum, einkum staðbundið við fjöll, yfir 25 metrum á sekúndu. Viðvörunin er í gildi til klukkan 20 í kvöld. Þá eru ökumenn bæði á Austfjörðum og Suðausturlandi hvattir til að sýna varúð og fylgjast með aðstæðum. Sérstaklega getur veðrið reynst hættulegt þeim ökumönnum sem eru með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Búast má við áframhaldandi kuldatíð hér á landi með stífri norðanátt, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar. Slydduél verða um landið norðaustanvert. Léttskýjað að mestu sunnan- og vestantil, og hiti allt að 12 stigum. Það dregur svo úr vini og éljum í kvöld og nótt. Hér má sjá veðurhorfur á landinu næstu daga, samkvæmt Veðurstofu Íslands: Á laugardag: Norðlæg og síðar vestlæg átt 5-10 m/s. Bjartviðri sunnan- og vestanlands, en skýjað norðaustantil á landinu fram á kvöld. Hiti 1 til 12 stig, hlýjast sunnanlands. Á sunnudag (sjómannadagurinn): Hægt vaxandi suðlæg átt. Bjart með köflum norðaustantil, en þykknar upp með rigningu sunnan- og vestanlands. Hiti 7 til 14 stig. Á mánudag: Suðlæg átt 8-15 og rigning, en þurrt norðaustantil fram yfir hádegi. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast norðaustantil. Á þriðjudag: Breytileg átt og rigning með köflum eða skúrir og milt í veðri. Á miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti breytist lítið.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira