Hætta öllum samskiptum við suðrið Vésteinn Örn Pétursson skrifar 9. júní 2020 06:38 Kim Jong-un er einræðisherra í Norður-Kóreu. JORGE SILVA/EPA
Norðurkóresk stjórnvöld hafa lokað öllum samskiptaleiðum milli Norður- og Suður-Kóreu. Þar á meðal er bein samskiptalína milli leiðtoga ríkjanna tveggja, Kim Jong-un í norðri og Moon Jae-in í suðri. Svo virðist sem öllum tengslum milli ríkjanna hafi verið slitið á hádegi að staðartíma, eða klukkan þrjú í nótt að íslenskum tíma. Venja var að tvö símtöl væru hringd á degi hverjum milli ríkjanna, eitt klukkan níu að morgni og annað klukkan fimm síðdegis. Í gær segja suðurkóresk stjórnvöld hins vegar að morgunsímtali þeirra hafi ekki verið svarað, þó að síðan hafi náðst samband yfir landamærin síðar um daginn. Það reyndist vera síðasta símtalið milli landanna, í það minnsta í bili. Í yfirlýsingu sem birst hefur í norðurkóreskum ríkismiðlum segir að engin þörf sé á samskiptum milli ríkjanna. „Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að óþarfi sé að sitja augliti til auglitis við suðurkóresk stjórnvöld, og að fyrir hendi sé ekkert vandamál til að ræða við þau. Þau hafa aðeins ýtt undir vonbrigði okkar,“ segir í yfirlýsingunni. Álykta má að samskiptaleysið tengist máli sem upp kom í síðustu viku. Þá hótaði Kim Yo-jong, systir Kim Jong-un, að slíta hernaðarsamkomulagi milli ríkjanna tveggja. Ástæðan var óánægja hennar með að suðurkóresk stjórnvöld virtust senda áróðursbæklinga yfir landamærin með blöðrum.
Norður-Kórea Suður-Kórea Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira