Innlent

Þríeykið fékk Fálkaorðuna

Andri Eysteinsson skrifar
Alma Möller, Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason ásamt forsetahjónunum á Bessastöðum í dag.
Alma Möller, Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason ásamt forsetahjónunum á Bessastöðum í dag. Vísir/Sigurjón

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi í dag þríeykið svokallaða, Ölmu Möller landlækni, Víði Reynisson, yfirlögregluþjón hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðleg athöfn á Bessastöðum.

Þríeykið fékk riddarakross fyrir störf sín í þágu heilbrigðismála og framlag í baráttu við Covid-19 farasóttina

Þá fékk tónlistarfólkið Helgi Björnsson og Hildur Guðnadóttir, óskarsverðlaunahafi, einnig fálkaorðuna fyrir framlag sitt til tónlistar

Samkvæmt hefð er fálkaorðan veitt á þjóðhátíðardaginn ár hvert og voru  fjórtán Íslendingar sæmdir orðunni í ár.

Þeir Íslendingar sem sæmdir voru fálkaorðunni í dag voru:

Alma Möller landlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismála og framlag í baráttu við Covid-19 farasóttina

Anna Dóra Sæþórsdóttir prófessor, Kópavogi, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á vettvangi ferðamálafræði og útivistar

Bárður Hafsteinsson skipaverkfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til hönnunar fiskiskipa og íslensks sjávarútvegs

Einar Bollason fyrrverandi formaður KKÍ og stofnandi Íshesta, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til íþrótta og störf á vettvangi ferðaþjónustu

Ellý Katrín Guðmundsdóttiur fyrrverandi borgarritari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á opinberum vettvangi og framlag til opinskárrar umræðu um Alzheimer sjúkdóminn

Helgi Björnsson leikari og tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og leiklistar

Hildur Guðnadóttir tónskáld, Berlín, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar tónlistar

Hulda Karen Daníelsdóttir kennari og formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði á sviði starfsþróunar og kennslu íslensku sem annars máls og framlag til eflingar tengsla við afkomendur Íslendinga í Vesturheimi

Jón Kalman Stefánsson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta

Jón Sigurðsson fyrrverandi rektor, seðlabankastjóri og ráðherra, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu

Sigrún Þuríður Geirsdóttir þroskaþjálfi, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir afrek á sviði sjósunds

Sigurborg Ingunn Einarsdóttir fyrrverandi hjúkrunarforstjóri og ljósmóðir, Eskifirði, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðisþjónustu í heimabyggð

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismála og framlag í baráttu við Covid-19 farasóttina

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismála og framlag í baráttu við Covid-19 farasóttina




Fleiri fréttir

Sjá meira


×