Liceu óperuhúsið í Barcelona opnaði dyr sínar í fyrsta sinn í rúma þrjá mánuði í gær. Tilefnið voru tónleikar fyrir laufskrúðugan áhorfendahóp, nánar tiltekið 2.292 stofublóm og pottaplöntur.
UceLi kvartettinn lék I Crisantemi eftir Giacomo Puccini fyrir plönturnar sem fylltu hvert sæti salarins. Tónleikunum var jafnframt streymt svo að mannverur gætu líka fylgst með. Hægt er að sjá upptöku af streyminu hér að neðan.
Óperuhúsið hefur verið lokað síðan takmörkunum vegna kórónuveirunnar var komið á á Spáni, en takmörkununum var aflétt á sunnudaginn. Landið hefur orðið afar illa úti í faraldrinum, en 293.584 hafa smitast og eru dauðsföll orðin 28.324 þegar þetta er skrifað.
Listamaðurinn Eugenio Ampudia á hugmyndina að viðburðinum, en móðir jörð veitti honum innblástur í faraldrinum.
„Ég heyrði í mun fleiri fuglum syngja,“ sagði listamaðurinn og sagðist einnig hafa tekið eftir að plöntur í garði sínum hafi vaxið hraðar. „Ég taldi mig þá geta tengt betur við bæði fólk og náttúruna, og á mun innilegri hátt.“
Í lok tónleikanna ómaði laufaþytur um salinn líkt og lófatak.
Samkvæmt starfsfólki óperuhússins er ætlunin að gefa plönturnar til framlínustarfsmanna í heilbrigðisgeiranum.