Innlent

Getur ekki orða bundist vegna deilna Icelandair og flug­freyja: „Verka­­lýðs­­for­­kólfar fara nú ham­­förum“

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta.
Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta. Vísir/Andri Marinó

„Verkalýðsforkólfar fara nú hamförum og það kemur ekki á óvart að þar fer Ragnar Þór Ingólfsson fremstur í flokki enda hefur hann tamið sér að vera stóryrtur mjög,“ skrifar Guðmundur Þórður Guðmundson þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handknattleik á Facebook.

Guðmundur var nokkuð harðorður í pistlinum sem hann birti á Facebook í kvöld og segist hann vart geta orða bundist vegna gangs mála í samningaviðræðum flugfreyja og Icelandair. „Icelandair á í stórkostlegum rekstrarerfiðleikum sem rekja má til áhrifa Covid-19 veirunnar. Líkja má þessu ástandi við hamfarir.“

Hann segir fyrirtæki um alla Evrópu og víðar freista þess að komast að samkomulagi við starfsmenn sína um launalækkanir til að geta lifað af „þær hremmingar sem ganga yfir heimsbyggðina.“

„Samninganefnd FFÍ og stór hluti félagsmanna þeirra samtaka virðist ekki hafa áttað sig á að núverandi aðstæður hvað flugrekstur varðar eru fordæmalausar. Staða Icelandair og annarra flugfélaga er slík að án verulegra hagræðinga og þar með launalækkana munu þau ekki lifa af,“ skrifar Guðmundur.

„Mér finnst að staðan sem er uppi almennt í heiminum sé fordæmalaus og eins og ég er búin að upplifa í Þýskalandi, ég bý þar, að þar er komin upp staða hjá fyrirtækjum að það er óhjákvæmilegt að leita leiða til að hagræða í rekstri og þá er hluti af pakkanum launahlutinn,“ segir Guðmundur í samtali við Vísi.

„Þegar maður horfir á flugfélög sem hafa orðið fyrir stórkostlegri skerðingu á sínum tekjum að ef menn ætla að reyna að bjarga því sem bjargað verður þá sé ég ekki annað en að allir þurfi að leggjast á árar í því.“

Hann segir verkalýðsforystuna hafa takmarkaðan skilning á stöðu mála. „Mér finnst menn nota mjög stóryrtar yfirlýsingar og mér finnst verkalýðsforystan fara hamförum í því og hafa takmarkaðan skilning á stöðu mála,“ segir Guðmundur.

Þá telji hann kjaraviðræður seinni tíma mál og ekki tímabært að slíkar viðræður fari fram þegar staðan sé svo slæm hjá flugfélögum. „Ég held það sé seinni tíma mál. Ég held að eins og staðan er núna að hún sé svo erfið að flugfélag sem er að reka stóran flota, þetta eru svo ofboðslega miklir fjármunir sem eru undir. Ég sé ekki annað en til að það sé hægt að bjarga þessu verði allar að leggjast á árar.“

„Covid er ekki að fara, fólk verður að gera sér grein fyrir að þetta er viðvarandi ástand. Það er talað um það hér að í vetur muni kreppa stórkostlega að fyrirtækjum. Við erum ekki búin að sjá fyrir endann á því hvað þessi veira hefur gert að verkum í rekstri fyrirtækja,“ segir Guðmundur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×