Maddison framlengir við Leicester Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. júlí 2020 16:45 Maddison hefur verið frábær í liði Leicester síðan hann kom frá Norwich City árið 2018. EPA-EFE/ANDY RAIN
Samkvæmt heimildum BBC ku James Maddison vera við það að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Leicester City. Hann er því ekki á förum frá félaginu en orðrómar þess efnis hafa verið háværir undanfarna mánuði. Maddison hefur helst verið orðaður við Manchester United en það virðist sem Ole Gunnar Solskjær ætli að einbeita sér að því að fjárfesta í Jadon Sancho, leikmanni Borussia Dortmund. Ef það gengur ekki eftir er Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa, næstur á listanum. Nýr samningur Maddison mun hljóða upp á 110 þúsund pund í vikulaun svo hann ætti að eiga fyrir salti í grautinn á næstu árum. James Maddison is set to sign a new deal at Leicester City.But the future of his team-mate Ben Chilwell is still uncertain. Full story: https://t.co/HFKvX8v1zy pic.twitter.com/8W69d9yWrN— BBC Sport (@BBCSport) July 29, 2020 Slæmt gengi Leicester undir lok leiktíðar er ekki við Maddison að sakast en hann hefur verið frá vegna meiðsla á mjöðm undanfarnar vikur. Hann byrjaði alls 29 leiki fyrir Leicester og kom tvívegis inn af varamannabekknum. Þá skoraði hann sex mörk og lagði upp tvö. Þar með er ljóst að Maddison verður áfram í herbúðum Leicester en Ben Chilwell – vinstri bakvörður liðsins – er á óskalista Frank Lampard hjá Chelsea og talið nær öruggt að hann yfirgefi Leicester í sumar.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Reykjavíkurmaraþonið í beinni á Vísi Sport Magnaður sigur Dags í Vestratreyju: „Núna er bara stefnan sett á ÓL“ Sport Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Íslenski boltinn Elísa langfyrst fyrir Magnús Mána: „Þessi dagur er fyrir hann“ Sport „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Íslenski boltinn Sjáðu „fólkið frá þessum stað“ fagna í alvöru gæsahúðarmyndbandi Fótbolti Aurier í bann vegna lifrarbólgu Fótbolti Gat ekki skammað frænda því hann þurfti að fara upp á spítala Handbolti „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Fótbolti „Það er æfing á morgun“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Manchester City - Tottenham | Alvöru próf fyrir gestina Sjáðu markaveisluna hjá Chelsea í Austur-Lundúnum Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Framlengir við City: „Ég elska Manchester“ Palmer meiddist í upphitun og ekki með gegn West Ham Rodri og Foden klárir í slaginn Viljum ekki leikmenn sem vilja ekki Spurs Ósáttur við aðgerðaleysið: Dreg fram skóna sjálfur Ófriðarbál hjá Forest og stjórinn mögulega rekinn Hvetur fólk til að brjóta reglu og velja Haaland „Ég vil hundrað prósent sjá hann aftur í Newcastle-treyju“ Grét í viku þegar Arsenal vildi hann ekki en sama félag borgar nú marga milljarða Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Tottenham beinir sjónum sínum að besta unga leikmanninum Telur X-faktorinn Eze vera púslið sem Arsenal vantaði Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Leeds kaupir Okafor og liðin í ensku úrvalsdeildinni aldrei eytt meiru Wirtz strax kominn á hættusvæði Ljóst hvenær Liverpool og Man. Utd mætast Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Arsenal að stela Eze frá Tottenham Framherjunum fækkar aftur hjá Arsenal Isak sást á æfingasvæði Newcastle í dag Á að reka umboðsmanninn á stundinni Kannast ekkert við fullyrðingar Fabrizio Romano Valdi úrvalslið Púllara: „Hefði átt að setja Djimi Traoré í vörnina“ Arnar um breytingar Liverpool: „Eins og copy-paste af PSG“ Arsenal skoðar markaðinn vegna meiðsla Havertz Sjá meira