Ofbeldisfulli pabbinn fær að mæta á mót en synirnir verða ekki þar Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2026 15:17 Gjert Ingebrigtsen þjálfaði lengi syni sína en þeir hafa síðan sakað hann um andlegt og líkamlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að hafa í fyrra verði dæmdur fyrir ofbeldi gagnvart dóttur sinni, og verið meinað af norska frjálsíþróttasambandinu að mæta á stórmót, mun hlaupaþjálfarinn Gjert Ingebrigtsen fá að mæta á norska meistaramótið í frjálsíþróttum um helgina.
Á sama tíma og margt fremsta frjálsíþróttafólk Íslands keppir á Meistaramóti Íslands innanhúss í Laugardalshöll um helgina þá munu Norðmenn keppa á sínu meistaramóti. Mótið í Noregi er hins vegar opið og því geta erlendir keppendur tekið þátt, þar á meðal keppendur sem Gjert Ingebrigtsen þjálfar. Þó að hann hafi verið bannaður frá stórmótum, af norska frjálsíþróttasambandinu, þá getur hann mætt á mótið um helgina því þar eru það frjálsíþróttafélögin í landinu sem að ráða. Samkvæmt TV 2 hafa þau veitt Ingebrigtsen heimild til að mæta. Enginn af sonum Ingebrigtsen keppir á mótinu. Hann var síðasta sumar sýknaður af ákæru um að hafa beitt einn þeirra, Ólympíumeistarann Jakob, ofbeldi en hlaut hins vegar 15 daga skilorðsbundinn dóm fyrir ofbeldi gegn Ingrid, dóttur sinni. Norskir miðlar segja þjálfarann hafa fengið franska hlauparann Maël Gouyette inn í sinn lærlingahóp og að hann keppi í 1.500 og 3.000 metra hlaupi í Noregi um helgina. Narve Gilje Nordås, Per Svela, José Carlos Pinto og Kieran Lumb séu einnig í hópi Ingebrigtsen og muni keppa á mótinu, ýmist í 800, 1.500 eða 3.000 metra hlaupi.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Hjalti stýrir Skagamönnum Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Spurs knúðu fram oddaleik Tilfinningaríkur sigur Littler Dagskráin í dag: Baráttan um þriðja sætið í Bestu deild karla Snýr aftur heim til Víkinga Sabalenka þakklát eftir sigur Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Martin valinn mikilvægastur Allegri ráðinn þjálfari Napoli Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Emil Barja tekur við Stjörnunni Sjá meira