Vara við vatnavöxtum og hættu á skriðuföllum Vésteinn Örn Pétursson skrifar 7. ágúst 2020 07:17 Veðurhorfur á landinu á hádegi í dag. Veðurstofa Íslands/Skjáskot
Búast má við vestlægri eða breytilegri átt, 3 til 10 metrum á sekúndu í dag, en allt að 15 metrum á sekúndu með suðaustur- og austurströnd landsins. Þá verður rigning eða skúrir víðast hvar, en norðaustanlands á að stytta upp um hádegi. Hiti á bilinu 8 til 13 stig, en allt að 18 stig á Austurlandi. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að talsvert hafi rignt í nótt og geri enn sums staðar. Því megi búast við vatnavöxtum og aukinni hættu á skriðuföllum austan- og suðaustanlands þar sem úrkoman hefur verið hvað mest. Á morgun má þá búast við suðvestanátt, 5 til 13 metrum á sekúndu og skúrum um vestanvert landið. Rigna á sunnan- og vestantil seint annað kvöld. Hiti á morgun verður á svipuðu bili og í dag, en bjart austantil og hiti um 13 til 18 stig að deginum. Hér að neðan má sjá veðurhorfur á landinu næstu daga, samkvæmt Veðurstofunni: Á laugardag: Suðvestan 5-13 m/s. Skúrir um vestanvert landið og hiti 8 til 13 stig. Fer að rigna sunnan- og vestantil seint um kvöldið. Bjart með köflum austantil og hiti 13 til 18 stig að deginum Á sunnudag: Sunnan átt, 8-13 m/s. Víða rigning og hiti 9 til 15 stig, en úrkomulítið norðaustan- og austanlands og hiti að 18 stigum. Á mánudag og þriðjudag: Sunnan átt, lengst af 5-10 m/s. Rigning með köfum sunnan- og vestantil og hiti 10 til 15 stig, en bjart með köflum á norðaustanverðu landinu og hiti að 20 stigum yfir daginn. Á miðvikudag: Fremur hæg vestlæg átt og dálítil rigning framan af, en bjart veður vestanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast suðaustanlands. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðlæga eða breytileg átt og rigningu um vestanvert landið, en bjart, þurrt og hlýtt veður norðan- og austantil.
Veður Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent