Ríkisstjórn Rússlands segir af sér Samúel Karl Ólason skrifar 15. janúar 2020 13:59 Vladimir Pútín og Dimitry Medvedev. AP/Alexei Nikolsky
Dimitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, hefur beðist lausnar fyrir ríkisstjórn sína. Vladimir Pútín, forseti, hefur þó skipað ríkisstjórn Medvedev að sinna skyldum sínum áfram, þar til ný ríkisstjórn hefur verið skipuð. Með þessu segist Medvedev vilja gefa Pútín það svigrúm sem hann þarf til að gera umfangsmiklar breytingar á stjórnarskrá Rússlands. Pútín hefur lagt til að breytingar verði gerðar á stjórnarskrá Rússlands, sem myndu færa völd forsetaembættisins til þingsins og annarra stofnanna. Meðal breytinga sem Pútín lagði til er að takmarka forseta framtíðarinnar við tvö kjörtímabil og að þingið skipi forsætisráðherra og ríkisstjórn. Vert er að taka fram að Pútín er nú á fjórða kjörtímabili sínu í embætti forseta. Forsetinn kallaði einnig eftir þjóðaratkvæðagreiðslu til að staðfesta breytingarnar. Pútín hefur í raun stýrt Rússlandi frá 1999. Hann varð forsætisráðherra árið 2008, vegna takmarkana á fjölda kjörtímabila sem forseti mátti sitja, og Medvedev varð forseti. Pútín tók svo aftur við embætti forseta 2012 og lengdi hann kjörtímabilið úr fjórum í sex ár. Núverandi kjörtímabili hans lýkur árið 2024 og hefur hann ekki gefið út hvað hann ætlar sér að gera. Greinendur telja að með þessum tillögum sínum sé Pútín þegar byrjaður að undirbúa það að hann taki við embætti forsætisráðherra eftir 2024 og haldi þannig áfram að stjórna Rússlandi. Hann gæti sömuleiðis tekið við formennsku ríkisráðsins, sem hann vill einnig gera valdameira.
Rússland Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Fleiri fréttir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Sjá meira