Erlent

Prestur lést þegar róðu­kross féll á hann

Samúel Karl Ólason skrifar
Myndir frá minningarathöfn í kirkju prestsins í Ekvador.
Myndir frá minningarathöfn í kirkju prestsins í Ekvador. Arquidiócesis de Guayaquil

Ekvadorskur prestur lét lífið þegar stór róðukross féll á hann í miðri messu á laugardaginn. Alfredo Sánchez Molinari var prestur í Guayaquil en hann var 53 ára gamall. Streymt var frá messunni í beinni útsendingu og hefur myndband af slysinu verið í dreifingu á netinu um helgina.

Það sýnir prestinn í miðri messu þegar stór krossinn fyrir aftan hann losnar af veggnum og fellur á hann. Þá stóð Malinari við altari kirkjunnar og sneri að söfnuði sínum, frá krossinum, og varð hann ekki var við að krossinn væri að falla.

Meðlimir safnaðarins komu honum til aðstoðar og síðar sjúkraflutningamenn. Endurlífgunartilraunir þeirra báru ekki árangur og var Molinari úrskurðaður látinn.

Minningarathöfn var haldin í kirkju Molinari í gær.

Í færslu kirkjunnar á Facebook, þar sem birtar voru myndir frá athöfninni, er þakkað fyrir samúðarkveðjur og bænir sem munu hafa borist frá öllum heimshornum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×