KR-ingar og velunnarar hámuðu í sig slátrið og pungana Stefán Árni Pálsson skrifar 20. janúar 2020 15:30 Sturlað stuð í KR-heimilinu á laugardagskvöldið. myndir/Erling Ó Aðalsteinsson
KR-ingar og aðrir gestir hámuðu í sig slátrið og létu sig ekki muna um að sporðrenna súrsuðum hrútspungum eins og enginn væri morgundagurinn á hinu árlega þorrablóti sínu sem haldið var um helgina. Með þessu skutluðu þeir í sig brennivíni úr staupum eins og lög gera ráð fyrir þegar menn graðka í sig hákarlsbitunum. Má segja að blótið sé hápunktur samkvæmislífs Vesturbæinga en þá kasta þeir glaðir af sér hempu hins kúltíveraða heimsborgara og koma út úr skápnum sem þeir þjóðlegu sveitamenn og þeir eru inni við beinið. Bubbi Morthens, gegnheill KR-ingurinn, skemmti mannskapnum af sinni alkunnu snilld og segir hann: „Þetta er í fyrsta skipti sem ég spila fyrir dansandi fólk síðan níutíuogeitthvað.“ Má þetta vera til marks um gleðina sem réði ríkjum í KR-heimilinu á laugardagskvöldið og fangaði Erling Ó Aðalsteinsson stemninguna með þeim myndum sem sjá má neðar. Eins og margir vita samdi Bubbi Morhens KR-sönginn Við erum svartir, við erum hvítir og tók hann lagið það í fyrsta skipti opinberlega með hljómsveit eins og sjá má hér að neðan. Það var svo sjálfur Bogi Ágústsson, sjónvarpsfréttaþulur Ríkisútvarpsins númer eitt, sem kynnti Bubba inn á svið. Það mátti ekki minna vera. Jói í Múlakaffi fyrir miðju í góðum félagsskap.Mikið fjör á þessu borði.Bjarni Guðjónsson, aðstoðarþjálfari KR, mætti auðvitaðGestir sátu til borðs í DHL-höllinni.Knattspyrnugoðsagnir saman á borði.Þórhildur Garðarsdóttir má sjá hér lengst til hægri. Hún dró vinkonurnar á flot en Þórhildur kom að skipulagningu blótsins.Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri og Ingibjörg Ösp létu sig ekki vanta.Samfylkingin lét sig ekki vanta á blótið en þarna má meðal annara sjá Loga Einarsson og Helgu Völu Helgadóttir. Til að setja hámenningarlegan svip á borðið er Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari sinfóníuhljómsveitarinnar lengst til hægri á myndinni.Knattspyrnumenn í fjöri. Núverandi og fyrrverandi leikmenn KR.Körfuboltaelítan mætti og skemmti sér vel.Willum Þór Þórsson í hörku samræðum.Tvær vinkonur í miklu stuði.Fáir eru harðari KR-ingar en sjónvarpsfréttamaðurinn Höskuldur Kári Schram en hann má gjarnan heyra í Útvarp KR á sumrin.Bjarni Guðjóns og Rúnar Kristinsson fóru með KR-inga alla leið síðasta sumar.Gríðarleg stemning ríkti á þorrablótinu en líkt og sjá má á þessari mynd var utanríkisráðuneytið með sinn fulltrúa á skemmtuninni; Auðunn Atlason lengst til hægri klappar skemmtikröftum lof í lófa.Gummi Ben var veislustjóri.Schram-fjölskyldan í góðu glensi. Ellert B. Schram hlýtur að teljast einhver harðasti KR-ingur sem um getur og er ferill hans með félaginu sérlega glæsilegur.Ragnhildur Steinunn mætti í sínu fínasta pússi.Jónas Kristinsson framkvæmdastjóri KR lét sig að sjálfsögðu ekki vanta.Ari Eldjárn kom fram á laugardagskvöldið.Kristinn Kjærnested var eðlilega mættur.Kóngurinn Maggi Bö með Íslandsmeistarabikarana.Bubbi Morthens alltaf verið mikill KR-ingur.Líf Magneudóttir sá til þess að skapa mótvægi við Samfylkingarfólkið sem var á staðnum en hún er auðvitað borgarfulltrúi VG. Hún er þarna í góðum félagsskap önnur frá hægri.Bogi Ágústsson í góðum gír.Gummi Ben mætti auðvitað með ananas beint úr Hagkaupum Eiðistorgi. Spurning hvort einhverjir Seltirningar voru í salnum.Grímur Atlason ásamt eiginkonu sinni Helgu Völu Helgadóttur, mági sínum Skúla Helgasyni og konu hans Önnu Lind PétursdótturMikið dansað og mikið fjör.
Þorrablót Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira