Fjörugur síðari hálfleikur er Leicester og Chelsea skildu jöfn Anton Ingi Leifsson skrifar 1. febrúar 2020 14:15 Vardy og Kante í leiknum í dag. vísir/getty Leicester og Chelsea gerðu 2-2 jafntefli er liðin mættust í fyrsta leik 25. umferðarinnar í enska boltanum. Staðan var markalaus í hálfleik en eftir einungis 66 sekúndur í síðari hálfleik stangaði Antonio Rudiger hornspyrnu Mason Mount í netið. Adam var ekki lengi í paradís því átta mínútum síðar var allt orðið jafnt. Harvey Barnes komst upp vinstri vænginn, skot hans fór af varnarmanni og í netið. Harvey Barnes' last three games for Leicester in the Premier League: vs. Burnley vs. West Ham vs. Chelsea Three in three for the midfielder. pic.twitter.com/vtyHry0XoC— Squawka Football (@Squawka) February 1, 2020 Fjörið í síðari hálfleik hélt áfram því á 64. mínútu komst Leicester yfir. Þar var að verki vinstri bakvörðurinn Ben Chillwell eftir fyrirgjöf. Rudiger var hins vegar ekki hættur en hann var að spila sinn 100. leik fyrir Chelsea. Hann jafnaði metin á 71. mínútu. Aftur eftir fast leikatriði frá Mount en nú var það aukaspyrna. The first defender to score a #PL brace for @ChelseaFC since John Terry in April 2013@ToniRuediger#LEICHEpic.twitter.com/qmtKfvvZ6S— Premier League (@premierleague) February 1, 2020 Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 2-2. Leicester er áfram í 3. sætinu og Chelsea í 4. sætinu en átta stig skilja liðin að. Enski boltinn