Mark og stoðsending frá Rooney í stórsigri Anton Ingi Leifsson skrifar 31. janúar 2020 21:30 Rooney fagnar ásamt Waghorn. vísir/getty Wayne Rooney var í banastuði er Derby rúllaði yfir Stoke City, 4-0, í fyrsta leik helgarinnar í ensku B-deildinni. Leikurinn var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld en fyrsta markið kom á 21. mínútu er Martyn Waghorn kom Derby yfir. Einungis þremur mínútum var staðan orðin 2-0 er Chris Martin skoraði og heimamenn í Derby leiddu 2-0 í hálfleik. Rooney var svo sjálfur á skotskónum á 67. mínútu er hann skoraði beint úr aukaspyrnu og hann lagði svo upp fjórða og síðasta markið sjö mínútum síðar. Lokatölur 4-0. Wayne Rooney has scored his 1st goal for @dcfcofficial at Pride Park with a free-kick v Stoke He became @ManUtd's record goalscorer with a free-kick against Stoke in Jan 2017 pic.twitter.com/Eo4vxhN9ma— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) January 31, 2020 Derby skaust með sigrinu með sigrinum upp í 13. sæti deildarinnar. Liðið er með 40 stig, sjö stigum frá umspilssæti. Stoke er í 20. sætinu með 31 stig. Enski boltinn