Viðskipti erlent

Vilja fjögurra daga vinnu­viku til að hindra stór­felldar upp­sagnir

Atli Ísleifsson skrifar
Frá verksmiðju Volkswagen í Zwickau.
Frá verksmiðju Volkswagen í Zwickau. Getty

Stærsta stéttarfélag Þýskalands, IG Metall, hefur lagt til að fjögurra daga vinnuviku verði komið á í landinu til að koma megi í veg fyrir stórfelldar uppsagnir í þýskum iðnaði og bílaframleiðslu. Heimsfaraldurinn hefur, líkt og í öðrum löngum, haft mikil áhrif á þýskt efnahagslíf.

Þýskir fjölmiðlar greindu frá tillögu IG Metall nú um helgina, en um er að ræða útspil stéttarfélagsins í aðdraganda kjaraviðræðna komandi vetrar.

DW segir frá því að áður en til faraldursins kom hafi þýskur bílaiðnaður staðið frammi fyrir því að þurfa að ráðast í kerfislægar breytingar – aukna rafvæðingu, sjálfvirkni og aukna stafræna þróun.

Segir Jörg Hoffman, forseti stéttarfélagsins, að styttri vinnuvika gæti reynst „svarið við þeim kerfislægu breytingum sem ráðast þurfi í innan til dæmis bílaiðnaðarins“. „Með þessum hætti verði hægt að viðhalda störfum í geiranum í stað þess að leggja störf niður,“ sagði Hoffman.

IG Metall er stéttarfélag verkafólks sem starfar meðal annars hjá bílaframleiðendunum Audi, BMW og Porsche og er um að ræða stærsta stéttarfélag Evrópu.

Alls starfa um 830 þúsund manns innan þýskrar bílaframleiðslum og standur geirinn fyrir um fimm prósent af vergri landsframleiðslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×