Lífið

Gummi Ben í fyrsta sinn á hestbaki: „Guð hjálpi mér“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Gummi Ben viðurkenndi áður en hann fór á bak, að hann treysti ekki hestum.
Gummi Ben viðurkenndi áður en hann fór á bak, að hann treysti ekki hestum. Vísir/Hörður Þórhallsson
Gummi Ben reyndi ítrekað að hætta við og átti andvökunætur áður en hann fór í fyrsta skiptið á hestbak. Hann veit ekkert um  hestamennsku og líkir þessu við að setjast undir stýri án þess að vera með próf. Frumraun hans má sjá í öðrum þætti af mannlífsþættinum Hestalífið.

Guðmundur Benediktsson hóf kornungur glæstan feril knattspyrnumanns og var í hópi hinna fremstu á Íslandi þar til meiðsli settu strik í reikninginn. Nú síðustu ár hefur stjarna hans skinið skært í sjónvarpi, með einstökum lýsingum á fótboltaleikjum, og svo sem þáttastjórnandi ekki síst í hinum geysi vinsæla viðtalsþætti Föstudagskvöld með Gumma Ben. 

Telma Lucinda Tómasson vissi nákvæmlega hver væri besti maðurinn til þess að fara með Gumma í fyrsta útreiðatúrinn, Sóli Hólm.  

Klippa: Hestalífið - Gummi Ben og Sóli Hólm

Treysti ekki hestum

Íþróttakempan Gummi Ben lætur sér fátt fyrir brjósti brenna, en þegar kemur að hestum bregst honum kjarkurinn. En þá kemur Sóli Hólm til skjalanna, enda vanur hestum frá blautu barnsbeini. Telma Tómasson og Sóli ákveða að bjóða Gumma á bak hjá Sólhestum, hestaleigu sem pabbi Sóla rekur.

„Það sem er best við Gumma er að lappirnar á honum eru þannig að það er eins og hann hafi verið á hestbaki síðan hann fæddist, verið á feitri meri,“ segir Sóli áður en þeir byrja.

„Mér líður ekki vel satt að segja. Ég treysti ekki þessum dýrum,“ sagði Gummi en skipti svo á skoðun eftir að hann var kominn af stað. 

„Þetta er reyndar þægilegra en ég hélt. Ég hélt ég myndi ekki ráða neitt við neitt. Að allir hestar væru eins. Bara bilaðir.“

Sóli leiðréttir Gumma snarlega og segir að flestir hestar séu hinir ljúfustu. Að auki sé hann í byrjendaferð, á byrjendahesti, á byrjendahraða. „Þú værir í innanfótarsendingum ef þetta væri fótbolti,” útskýrir hann.

Gummi Ben og Sóli Hólm skemmta landsmönnum saman á föstudagskvöldum á Stöð 2.Vísir/Hestalífið

Stefnan tekin á Ólympíuleikana

Gummi var svo fljótur að ná sér í sjálfstraust í hestamennskunni og sagði við Sóla:

„Ég held að ég geti orðið íslandsmeistari, jafnvel heimsmeistari.“

Hann lætur ekki þar við sitja og setur sér háleitt markmið þegar þeir ræða um hestaíþróttina og hindrunarstökk á Ólympíuleikunum. 

„Það er ógeðslega flott. Ég horfi yfirleitt á það ef ég lendi á því; þeir eru að stökkva yfir á tíma og svona. Það er ógeðslega flott. Ég ætla að fara í það. Ég ætla á Ólympíuleika.“

Sóli Hólm, Gummi Ben, Telma og hesturinn Simmi VillVísir/Hörður Þórhallsson
Þáttinn í heild sinni má finna í spilaranum hér að ofan. Mannlífsþátturinn Hestalífið birtist á Vísi og Stöð 2 Maraþon aðra hverja viku en með umsjón þáttar fer Telma Lucinda Tómasson. Þættirnir eru unnir fyrir Vísi í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Beit.


Tengdar fréttir

Hestamennskan grefur sig djúpt inn í sálarlíf fólks

Í dag fer í loftið hér á Vísi fyrsti þátturinn af Hestalífinu í umsjón Telmu Lucindu Tómasson. Í þessum mannlífsþáttum fá áhorfendur að heimsækja skemmtilegt hestafólk sem hefur frá mörgu að segja.

„Það er eins og maður sé konungur um stund“

Í störfum sínum brýtur Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari heilann um leiðir til árangurs með handboltalandsliðinu. En til að hlaða batteríin skiptir hann algerlega um gír og gleymir sér með hestum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.