Brynjar Þór afboðar sig í stórleikinn vegna kórónuveirunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2020 12:00 Brynjar Þór Björnsson í leik með KR. Vísir/Vilhelm
Brynjar Þór Björnsson, lykilmaður KR og fyrrum fyrirliði liðsins ætlar ekki að mæta í stórleik KR og Stjörnunnar í Domino´s deild karla í körfubolta. Ástæðan er útbreiðsla kórónuveirunnar hér á landi. Brynjar Þór lýsir þessu yfir í yfirlýsingu á fésbókarsíðu sinni í dag. „Ég tel óskynsamlegt að mæta á jafn fjölmennan stað og DHL-Höllin mun vera annað kvöld,“ skrifar Brynjar meðal annars. „Við erum að glíma við mjög alvarlegan smitsjúkdóm á Íslandi og það er líklega hægt að draga úr útbreiðslu hans með réttum aðgerðum. Með því að forðast hópsamkomur á meðan óvissuástandi ríkir þá gæti það skipt sköpum að bregðast við strax,“ bætir Brynjar við. KR er í harðri baráttu um heimavallarrétt í úrslitakeppninni og hefur verið með marga leikmenn í meiðslum. Það er því ljóst að liðið má alls ekki við því að vera án Brynjars í þessum leik annað kvöld. Átta smit til viðbótar hafa greinst á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans það sem af er degi. 34 hér á landi eru nú smitaðir af kórónuveirunni sem veldur Covid-19 sjúkdómnum. Það má sjá alla yfirlýsingu Brynjars Þórs Björnssonar hér fyrir neðan.
Dominos-deild karla Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Sjá meira