Ekki búið að bera kennsl á líkið Samúel Karl Ólason skrifar 23. ágúst 2020 11:59 Enn er ekki talið að maðurinn hafi dáið með saknæmum hætti. Vísir/Vilhelm
Uppfært: Í upprunalegu fréttinni stóð að búið væri að bera kennsl á líkið og var þar stuðst við frétt Morgunblaðsins. Lögreglan segir ekki rétt að búið sé að bera kennsl á líkið. Ekki er búið að bera kennsl á líkið sem fannst í Breiðholti í fyrradag. Fregnir sem bárust af því í morgun eru rangar. Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir kennslanefnd enn að störfum. Unnið sé eftir hefðbundnu verklagi og það muni taka einhverja daga til viðbótar. Vonandi taki það stuttan tíma en það gæti verið lengri tími. Það sé talsvert ferli að bera kennsl á lík. Líkið fannst í skóginum við Hólahverfi í Breiðholti og er talið að það hafi legið þar í jafnvel nokkra mánuði. Ekki er þó talið að búið hafi verið að lýsa eftir viðkomandi. Upprunalega fréttin: Búið er að bera kennsl á líkið sem fannst í Breiðholti í fyrradag. Mögulega hefur það verið um nokkurra mánaða skeið þar sem það fannst í skóginum við Hólahverfi. Fram kemur á vef Morgunblaðsins að líkið er af eldri manni. Ekki hafði verið lýst eftir honum. Þá er enn ekki talið að maðurinn hafi dáið með saknæmum hætti. Það var maður sem gekk fram á líkið í skóginum í fyrradag. Málið er enn til rannsóknar hjá lögreglunni.
Lögreglumál Tengdar fréttir Lík fannst á víðavangi í Breiðholti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í Breiðholti í gær vegna líkfundar. 22. ágúst 2020 14:56 Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Sjá meira
Lík fannst á víðavangi í Breiðholti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í Breiðholti í gær vegna líkfundar. 22. ágúst 2020 14:56