Lionel Messi kom forráðamönnum Barcelona mjög ávart á þriðjudaginn með því segjast vera á förum frá félaginu. Gamli þjálfarinn hans vissi hins vegar alveg hvað var í gangi.
Lionel Messi hringdi í Pep Guardiola í síðustu viku til að segja honum að hann væri á förum frá Barcelona. The Times slær þessu upp í dag.
Messi heyrði hljóðið í Guardiola eftir að Barcelona liðið var nýbúið að tapa 8-2 á móti Bayern München í Meistaradeildinni. Messi var greinilega búinn að fá nóg af ástandinu í félaginu þar sem hann hefur spilað allan sinn feril.
Lionel Messi reportedly tipped off Pep Guardiola ahead of his transfer request.
— BBC Sport (@BBCSport) August 28, 2020
Gossip: https://t.co/AlfKcb71c0 pic.twitter.com/TWwPK1mG62
Þetta símtal sýnir líka það að Pep Guardiola vissi hvað Messi ætlaði að gera löngu á undan Barcelona og um leið gat hann fengið sína menn hjá Manchester City til að byrja undirbúa jarðveginn fyrir mögulega komu Messi.
Manchester City hefur fylgst lengi með þróun mála hjá Messi og Barcelona. Argentínumaðurinn hefur líka verið orðaður við City síðan að Pep Guardiola tók við.
Það þurfti aftur á móti eitthvað mikið að gerast í sambandi Lionel Messi og yfirmanna Barcelona til að argentínski snillingurinn færi að horfa í kringum sig.
Lionel Messi called Pep Guardiola last week to tell him he was going to leave Barcelona before formally informing the Catalan club.
— Times Sport (@TimesSport) August 28, 2020
Manchester City plan talks next week with the player s advisers | @martynziegler and @polballus #MCFC https://t.co/iIas7JKypf
Þetta símtal Guardiola og Messi sannar líka hversu gott sambandið er á milli þeirra fyrst að Messi treysti honum fyrir þessu löngu áður en það varð opinbert.
Guardiola á að hafa sagt við Messi í þessum sögulega símtali að hann ætlaði að láta eigendur Manchester City vita af því að hann vildi frá Messi til Manchester City.
Manchester City mun líklega bjóða Barcelona stóra peningaupphæð og leikmenn að auki en Börsungar eru enn að átta sig á þróun mála.
Messi á bara eftir eitt ár af samningi sínum við félagið og því gæti þetta mál endað fyrir dómstólum. Líklegra er þó að Barcelona, sem er að fara í uppbyggingu, sjái ljósið og reyni að fá eitthvað fyrir Messi og með því að hjálpa til við að laga upp á samband sitt við leikmanninn.
Lionel Messi er og verður besti leikmaðurinn í sögu Barcelona og félagið þarf á honum að halda i framtíðinni þó að hann reimi ekki á sig takkaskóna.