„Þetta er háðung – þetta er glatað!“ Jakob Bjarnar skrifar 21. september 2020 13:01 Magnús Geir Þórðarson er heldur betur að taka til hendinni í Þjóðleikhúsinu en ýmsum finnst sem hann sé að fara fram úr sér í nútíma- og markaðsvæðingu á hinu fornfræga leikhúsi. Ragnhildur Sverrisdóttir er ein þeirra og efnir til mikillar umræðu um nýtt lógó hússins. „
Þetta er háðung“, „þetta er glatað!“; „hræðilega ódýrt, hallærislegt og sæmir ekki Þjóðleikhúsi. Þetta eru meðal ummæla sem falla í athugasemdum við færslu sem Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, ritar í morgun. Hún gerir nýtt lógó Þjóðleikhússins að umfjöllunarefni og er ekki sátt. Hún segir að Þjóðleikhúsið virðist búið að skipta um lógó, þegjandi og hljóðalaust og spyr hvort einhverjum það til bóta? Sjálfri finnst henni svo ekki vera. „Mér finnst búið að „einfalda“ og „nútímavæða“ lógóið þar til það er nánast leikhúsinu til háðungar. Líklega getum við prísað okkur sæl að nafninu er þó rétt skipt á milli lína, öfugt við t.d. Stúden/takjal/larinn, en það skilti nær drepur mig út pirringi í hvert skipti sem ég rek augun í það,“ skrifar Ragnhildur og klikkir út með því að hér sé um að ræða „mánudagspirringur þeirrar sextugu“. En þetta er ekki meiri mánudagspirringur en svo, og léttvægur fundinn sem slíkur, að svo virðist sem mannskapurinn sem tjáir sig við innlegg Ragnhildar sé að mestu leyti á því að þarna sé Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri að fara fram úr sér í nútíma- og markaðsvæðingu á sjálfu Þjóðleikhúsinu. En Magnús Geir er greinilega að taka til hendinni svo um muna þar innan dyra. Á öllum vígstöðvum. Um helgina birtist þessi umfjöllun í Morgunblaðinu, um gagngerar breytingar sem ráðist hefur verið í innan húss í byggingu Guðjóns Samúelssonar: Þjóðleikhúsinu. Þannig hefur hann ráðist í gagngerar breytingar á innanhússarkítektúr hússins. Morgunblaðið fjallar um það á laugardaginn og kemur þar fram að endurbætur hafi kostað 155 milljónir króna. Og ímyndin er tekin og pússuð: „Endurnýjunin og orkan í Þjóðleikhúsinu kristallast í nýju og sterku merki sem nýtur sín, fullt sjálfstrausts, í öllum miðlum. Öll grafík var samræmd og einfölduð. Tekin var lykilmynd fyrir allt efni sem sýnir sterka skapandi liðsheild í startholunum fyrir eitthvað ógleymanlegt í allan vetur.“ Svo segir um nýtt merki Þjóðleikhússins í klausu á síðu auglýsingastofunnar EnnEmm, sem hefur tekið að sér að fríska upp á ímynd og útlit þessa musteris íslenskrar tungu; Þjóðleikhússins. Hér má sjá hvaða hugmyndafræði býr að baki hinu nýja lógó Þjóðleikhússins. Víst er að margir munu þurfa tíma, góðan tíma, til að venjast nýstárlegri ímynd hins gamla húss. En þeir sem taka til máls á síðu Ragnhildar gefa lítið fyrir hina dýpri og undirliggjandi hugmyndafræði auglýsingastofunnar. Athugasemdir hrannast inn. Ein þeirra sem leggur orð í belg er dóttir Jökuls Jakobssonar, eins virtasta leikskálds þjóðarinnar, Unnur Þóra rithöfundur með meiru: „Ég sakna grímanna sem mér hafa alltaf fundist heillandi tákn um leikhús og búa yfir tilvísum í forna leikhússögu.“ Kristjón Kormákur Guðjónsson, afabarn Jökuls, er sammála frænku sinni: „Gamla hæfir þessu betur. Nýja lógið eins og misheppnaður farsi sem myndi líklega fá hauskúpu eins og tíðkaðist stundum í gagnrýni í gömlu Pressunni!“ Menningarvitinn og sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason segir þetta gamla mjög gott og svo eitt dæmi sé tekið að auki; tónlistarkonan Sigríður Beinteinsdóttir kveður upp sinn dóm: „Gamla lógóið er miklu flottara og á að halda sér að mínu mati.“ Uppfært: Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri segir í samtali við Reykjavík síðdegis ánægjulegt að fólk hafi skoðanir á nýju merki leikhússins.
Leikhús Auglýsinga- og markaðsmál Samfélagsmiðlar Menning Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira