Halldór: Á móti fullmönnuðu liði Aftureldingar hefðum við verið vel rassskelltir og Svava Kristín Gretarsdóttir skrifa 24. september 2020 22:36 Halldór á hliðarlínunni í kvöld. vísir/huldamargrét
Halldór telur að sínir menn hafi vanmetið lið Aftureldingar sem mætti til leiks í kvöld enn það vantaði þrjá úr byrjunarliði heimamanna frá því í síðasta leik, Gunnar Malmquist, Þorstein Leó Gunnarsson og Halldór Inga Jónasson. „Þegar menn litu yfir hverjir væru að fara að mæta okkur í dag, það vantar auðvitað gríðalega mikið inní Aftureldinga liðið, menn héldu bara að þetta yrði auðvelt“ sagði Halldór. „Við gerðum alltaf glórulaus mistök, töpum boltanum eða stöndum ekki vörnina.“ Halldór var vægt til orða tekið ósáttur með frammistöðu sinna manna í leiknum. „Menn litu bara svolítið á næsta mann og biðu eftir því að hann myndi gera hlutina. Svo vorum við auðvitað að klikka á dauðafærum, endalaust af töpuðum boltum og bara miðað við þessa frammistöðu finnst mér magnað að við höfum haldið í við Aftureldingu.“ „Það vantaði auðvitað marga í þeirra lið. Á móti fullmönnuðu Aftureldingarliði hefðum við verið vel rassskelltir hérna í dag, það er alveg ljóst.“ Guðmundur Hólmar endaði markahæstur Selfyssinga en átti engan stórleik þrátt fyrir það. Halldór segir að það sé ekki hægt að treysta alltaf á fullkominn leik frá einum leikmanni. „Einn leikmaður getur ekki haldið okkur á floti. Það er alveg ljóst að við verðum að fá framlag frá fleiri leikmönnum, sameiginlegt verkefni okkar leikmanna og þjálfara. Með þessum sóknarleik, bæði í dag og í síðasta leik þá erum við ekki að fara að gera mikið“ sagði Halldór Jóhann að lokum.
Olís-deild karla UMF Selfoss Afturelding Mest lesið Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Körfubolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Íslenski boltinn Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Íslenski boltinn Fleiri fréttir Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Sjá meira