Aston Villa með fullt hús stiga eftir að hafa niðurlægt Englandsmeistara Liverpool 4. október 2020 20:15 Aston Villa fór hamförum í leik dagsins gegn Englandsmeisturum Liverpool. Peter Powell/Getty Images Undarlegasta helgi síðari ára í enska boltanum fékk viðeigandi endi er Aston Villa niðurlægði Englandsmeistara Liverpool á heimavelli í lokaleik dagsins. Lokatölur á Villa Park 7-2 heimamönnum í vil. Ollie Watkins hóf veisluna strax á 4. mínútu er hann kom Aston Villa yfir. Hann bætti við sínu öðru marki á 22. mínútu en Mohamed Salah minnkaði muninn á 33. mínútu. Aðeins tvemur mínútum eftir það var staðan orðin 3-1 þökk sé marki John McGinn og Ollie fullkomnaði þrennu sína á 39. mínútu. Staðan því 4-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik. Sýning heimamanna hélt áfram í þeim síðari en Ross Barkley - lánsmaður frá Chelsea - bætti við fimmta marki Villa þegar tíu mínútur voru liðnar. Mo Salah minnkaði muninn í 5-2 fimm mínútum eftir það. Það var hins vegar Jack Grealish sem átti loka orðið en hann skoraði tvívegis og tryggði Aston Villa ótrúlegan 7-2 sigur. Jack Grealish's game by numbers vs. Liverpool:51 touches8 ball recoveries5/6 duels won5 chances created3 tackles made3 assists3 shots2 goals2 clearancesDirectly involved in five goals against the reigning champions. pic.twitter.com/l3T0fbgy38— Squawka Football (@Squawka) October 4, 2020 Aston Villa er því með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í ensku úrvalsdeildinni á meðan Liverpool var að tapa sínum fyrsta leik. Liðið var án Sadio Mané, Thiago og Alisson í dag. Enski boltinn Fótbolti