Innlent

Svona var 120. upp­lýsinga­fundur al­manna­varna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Upplýsingafundurinn í dag fer fram klukkan 11. Þeir hafa undanfarið farið fram mánudaga og fimmtudaga klukkan 14 en á næstunni verða fundir þessa sömu daga klukkan 11.
Upplýsingafundurinn í dag fer fram klukkan 11. Þeir hafa undanfarið farið fram mánudaga og fimmtudaga klukkan 14 en á næstunni verða fundir þessa sömu daga klukkan 11. Vísir/Vilhelm

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boðaði til upplýsingafundar klukkan 11 í dag í Katrínartúni.

Alma Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fóru yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni.

47 greindust smitaðir á laugardag en Víðir sagði að eins og tölurnar hafi litið út í gærkvöldi þá voru heldur fleiri að greinast með kórónuveiruna í gær heldur en á laugardag.

Uppfært: Hér að neðan má sjá upptöku af fundinum í heild sinni. Þá má lesa beina textalýsingu þar að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×