Bæta við einni hæð fyrir fólk í einangrun Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. október 2020 08:03 Hótel Lind hefur hingað til verið fyrir sjúklinga í einangrun og Hótel Rauðará fyrir fólk í sóttkví en nú er Hótel Lind að fyllast. Því þarf að nýta 4. hæðina á Hótel Rauðará fyrir sjúklinga í einangrun. Vísir/Vilhelm
Rauði krossinn hefur útbúið 4. hæðina á Hótel Rauðará fyrir einangrun sjúklinga sem eru með Covid-19. Hingað til hefur Hótel Rauðará verið fyrir fólk í sóttkví og þá aðallega hælisleitendur. Hótel Lind hefur aftur á móti verið nýtt fyrir Covid-19-sjúklinga sem geta af einhverjum ástæðum ekki verið heima hjá sér. Morgunblaðið greinir frá í dag og hefur eftir Gylfa Þór Þorsteinssyni, umsjónarmanni farsóttarhúsa hjá Rauða krossinum, að hæðin á Hótel Rauðará verði tekin í notkun þegar þörf verður á. Það gæti orðið í dag. Alls voru 86 gestir í farsóttarhúsunum í gær, þar af 63 í einangrun og 23 í sóttkví. Starfsemin er á fyrrnefndum hótelum en Gylfi Þór segir tímaspursmál hvenær Hótel Lind fyllist af sjúklingum í einangrun og taka þurfi 4. hæðina á Hótel Rauðará í notkun. Álagið í farsóttarhúsunum hefur verið mun meira í þessari bylgju faraldursins heldur en þeirri fyrstu í vor. Fjölgað hefur verið um tvo starfsmenn og eru þeir nú átta en Gylfi segir í samtali við Morgunblaðið að þörf kunni að vera á því að fjölga starfsfólki enn frekar.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Reykjavík Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira