Jafnt í Íslendingaslagnum | Bjarki og Viggó fóru á kostum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. október 2020 15:55 Bjarki Már var frábær í liði Lemgo að venju. @tbvlemgolippe
Íslendingalið Stuttgart og Lemgo gerðu jafntefli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, lokatölur 26-26. Viggó Kristjánsson og Elvar Ásgeirsson leika með Stuttgart á meðan Bjarki Már Elísson leikur með Lemgo. Þá lék Oddur Gretarsson í enn einu tapi Balingen. Leikur Stuttgart og Lemgo var mikil skemmtun og hnífjafn frá upphafi til enda. Gestirnir voru aðeins sterkari í fyrri hálfleik og leiddu með tveimur mörkum er liðin gengu til búningsherbergja, staðan þá 15-13 gestunum í vil. Stuttgart kom til baka í þeim síðari og lauk leiknum eins og áður sagði með jafntefli, 26-26. Bjarki Már var líkt og venjulega markahæstur í liði Lemgo en hann gerði sjö mörk í dag. Viggó gerði sex í liði Stuttgart en Elvar komst ekki á blað. Þá skoraði Oddur Gretarsson þrjú mörk í sex marka tapi Balingen-Weilstetten á útivelli gegn Essen. Lokatölur 33-27 Essen í vil og Balingen nú tapað öllum fjórum deildarleikjum sínum til þessa. Lemgo og Stuttgart eru sem fyrr í 8. og 9. sæti deildarinnar þar sem bæði lið hafa unnið tvo, tapað einum og gert eitt jafntefli. Lið Odds er stigalaust í 18. sæti deildarinnar. Í úrvalsdeild kvenna í Þýskalandi var Hildigunnur Einarsdóttir í eldlínunni með liði sínu Bayer Leverkusen. Skoraði hún þrjú mörk í stórsigri á Bad Wildungen Vipers, lokatölur 33-18. Eftir sigurinn hefur Leverkusen unnið þrjá og tapað tveimur af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni. Liðið er í sjöunda sæti.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira