Ein marktilraun dugði Leicester til sigurs gegn Arsenal Arnar Geir Halldórsson skrifar 25. október 2020 21:09 Lék sér að Arsenal. vísir/Getty Arsenal fékk Leicester í heimsókn í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hófu gestirnir leik með sinn besta mann, Jamie Vardy, á varamannabekknum. Alexandre Lacazette virtist vera að koma Arsenal í forystu strax á 2.mínútu eftir að hafa skallað boltann í netið en markið var dæmt af þar sem Granit Xhaka var rangstæður og hafði truflandi áhrif á Kasper Schmeichel, markvörð Leicester, að mati dómarans. Í kjölfarið tóku við frekar bragðdaufar mínútur þar sem Arsenal var meira með boltann en tókst ekki að ógna vel skipulögðu liði Leicester að neinu viti. Vardy var skipt inná á 60.mínútu og það tók hann 20 mínútur að setja mark sitt á leikinn en hann átti fyrstu marktilraun gestanna á mark á 80.mínútu og hún rataði í netið. Vardy fékk svo tækifæri til að skora annað mark í uppbótartíma en hann skaut boltanum í höfuðið á Bernd Leno úr góðu færi. Fleiri urðu mörkin ekki og 0-1 sigur Leicester á hugmyndasnauðu Arsenal liði staðreynd. Enski boltinn