Dómarinn verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. maí 2026 10:31 John Beaton tók umdeilda ákvörðun sem gaf Celtic séns á að vinna titilinn. Ross MacDonald/SNS Group via Getty Images Búist er við látum þegar úrslitaleikur um skoska meistaratitilinn milli Celtic og Hearts fer fram í dag. Dómarinn í síðasta leik Celtic hefur verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag eftir að persónulegum upplýsingum um hann var lekið á netið.
Celtic þarf sigur á heimavelli en Hearts dugir jafntefli á útivelli til að verða meistari. Celtic og nágrannaliðið Rangers hafa unnið deildina til skiptis síðustu fjörutíu ár en nú gæti verið komið að nýjum meistara. Mikið hefur gengið á í síðustu leikjum liðanna fyrir þennan. Dómar hafa fallið gegn Hearts, að þeirra mati. Skýrasta dæmið er um tvær umdeildar vítaspyrnur. Annars vegar vildi Hearts fá víti undir lok leiks gegn Motherwell í þarsíðustu umferð. Ekkert var dæmt og leiknum lauk með jafntefli. Hins vegar fékk Celtic víti undir lok leiks gegn Motherwell í síðustu umferð. Á níundu mínútu uppbótartíma skoraði Celtic úr vítinu og fékk þar með séns á að vinna titilinn í dag. Dómarastéttin og lið Motherwell hafa því haft mikið að segja í þessari titilbaráttu. John Beaton veitti Celtic þessa umdeildu vítaspyrnu. Hann hefur verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag og maður var handtekinn í gær, grunaður um að hafa lekið persónulegum upplýsingum um hann á netið. Úrslitaleikur Celtic og Hearts hefst klukkan 11:30. Tómas Bent Magnússon er meiddur og spilar ekki með Hearts-mönnum en gæti kallað sig skoskan meistara síðar í dag.
Skoski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Sjá meira