Viðskipti innlent

Bakarar furða sig á OECD

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Framkvæmdastjóri OECD segir stofnunina leggja til að lögverndun bakaraiðnar verði afnumin.
Framkvæmdastjóri OECD segir stofnunina leggja til að lögverndun bakaraiðnar verði afnumin.

Landssamband bakarameistara gerir alvarlegar athugasemdir við ummæli framkvæmdastjóra OECD þess efnis að bakaraiðn ætti ekki að njóta lögverndar. 

Í yfirlýsingu frá bökurum er vísað til ummæla sem féllu fyrr í dag á kynningarfundi um niðurstöður samkeppnismats OECD á samkeppnishindrunum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu.

Þar sagði Ang­el Gur­ría, framkvæmdastjóri OECD, stofnunina mæla með afnámi lögverndar bakaraiðnar. Í skýrslunni er vísað til þess að hvergi í Evrópu séu fleiri starfsgreinar lögverndaðar en á Íslandi. Þá segir að of yfirgripsmikil lögverndun geti leitt til hærra verðs til neytenda.

Landssamband bakarameistara gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð OECD. „Ekki er annað hægt en að furða sig á þessum starfsháttum stofnunarinnar sem með þessari tillögu virðist fara langt út fyrir verksvið sitt,“ segir í yfirlýsingunni.

Í viðtali við fréttastofu í dag sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra að skoða þyrfti regluverkið.

„Sumt af þessu er orðið mjög gamalt og annað nýrra. „Við þurfum að fara í gegnum hvar eru málefnalegar ástæður fyrir því að eitthvað þurfi að lögvernda,“ sagði Þórdís.

„Landssamband bakarameistara bendir á að í íslensku samfélagi er almennt lögð rík áhersla á fagmennsku, gæði, öryggi, neytendavernd og menntun. Kapp er einnig lagt á að auka fjölda iðnmenntaðra og mæta þannig þörf markaðarins fyrir slíkt vinnuafl. Lögverndun iðngreina eru í raun ákveðin undirstaða í þeirri vegferð enda er markmið þeirra að tryggja gæði sem og fagleg og örugg vinnubrögð í iðngreinum,“ segir í yfirlýsingu.

„Landssamband bakarameistara fagnar allri umræðu um mikilvægi löggildingar enda er tilgangur þess kerfis að ábyrgjast gæði og fagmennsku. Hins vegar er mikilvægt að sú umræða fari fram á réttum vettvangi en ekki kastað fram með óábyrgum hætti eins og Efnahags- og framfarastofnun OECD leyfir sér að gera.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×