Níu leikir eru á dagskrá í dag í Þjóðadeildinni í fótbolta, þar á meðal stórleikur ríkjandi Evrópumeistarar og heimsmeistara.
Þrír leikir eru á rásum Stöðvar 2 Sport en sex eru í opinni dagskrá hér á Vísi. Þá má finna hér að neðan.
Portúgal og Frakkland leika hálfgerðan úrslitaleik um efsta sæti 3. riðils og þar með sæti í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar. Sá leikur er á Stöð 2 Sport 2 og hefst kl. 19.45. Svíþjóð og Króatía mætast í sama riðli þar sem Svíar verða helst að vinna til að geta haldið sér í A-deildinni.
Hörð keppni er um efsta sætið í 4. riðli og eru báðir leikir riðilsins sýndir hér á Vísi. Sviss mætir Spáni sem er efst í riðlinum með 7 stig, en Þýskaland og Úkraína eru með 6 stig og mætast í Leipzig.
Lista yfir alla leiki dagsins og kvöldsins má sjá hér að neðan. Hægt er að horfa á útsendingar frá leikjum á Vísi með því að smella á viðeigandi hlekk hér að neðan. Útsendingarnar birtast neðst í textalýsingu hvers leiks, svo að lesendur gætu þurft að skruna niður í gegnum textalýsingu til að finna beina útsendingu.
Markaþáttur Þjóðadeildarinnar er svo sýndur á Stöð 2 Sport 2 kl. 21.45 í kvöld.
Leikir í beinni í dag:
A-deild:
3. riðill:
19.45 Portúgal - Frakkland (Stöð 2 Sport 2)
19.45 Svíþjóð - Króatía (Stöð 2 Sport 4)
4. riðill:
19.45 Sviss - Spánn (Vísir)
19.45 Þýskaland - Úkraína (Vísir)
C-deild:
1. riðill:
17.00 Aserbaídsjan - Svartfjallaland (Vísir)
17.00 Kýpur - Lúxemborg (Vísir)
D-deild:
1. riðill:
14.00 Malta 3 - 1 Andorra
17.00 Lettland - Færeyjar (Stöð 2 Sport 2)
2. riðill:
14.00 San Marínó 0 - 0 Gíbraltar