Innlent

Telur konur fá harðari gagnrýni þegar þær brjóta jafnréttislög

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra. Vísir/vilhelm

Menntamálaráðherra ætlar að birta öll gögn sem tengjast ráðningu ráðuneytisstjóra í mennta-og menningarmálaráðuneytinu þegar niðurstaða fæst í kærumáli hennar. Hún bendir á að Viðreisn hafi gagnrýnt sig harkalega á meðan formaður flokksins sé systir umsækjanda um stöðuna.

Samkvæmt lögum kærunefnd jafnréttismála eru úrskurðir hennar bindandi gagnvart málsaðilum, en þeim er síðan heimilt að bera úrskurði hennar undir dómstóla. Ráðherra þarf því að höfða mál gegn ósáttum umsækjenda til þess að hægt sé að ógilda úrskurðinn. 

Kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði í vor að Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefði brotið jafnréttislög með ráðningu Páls Magnússonar í embætti ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins. Hafdís Helga Ólafsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, kærði ráðninguna til kærunefndarinnar, en hún var ekki í hópi þeirra fjögurra sem hæfisnefnd mat hæfasta í starfið

Lilja Alfreðsdóttir var spurð út í málið á Sprengisandi í morgun og hvort það hefði ekki haft áhrif á vinsældir hennar sem hafa dalað síðustu misseri og vakið tortryggni því Páll Magnússon hafi gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn.

„Ég hlakka til að geta farið betur yfir þessi mál þegar því er lokið fyrir dómstólum. Þarna var hæfnisnefnd sem valdi fjóra einstaklinga sem hún telur hæfasta. Ég tek það mat og vandaði mig ofboðslega. Ég vil gjarnan deila með þjóðinni öllum gögnum í þessu máli þegar það verður hægt. Það mun koma í ljós að þarna var hæfasti einstaklingurinn valinn. Við getum heldur ekki hegnt fólki fyrir að hafa einhvern tíma tekið þátt í stjórnmálasamstarfi,“ segir Lilja. 

Fordæmi fyrir samherjum í ráðuneytisstjórastöðum

Lilja bendir á að fleiri hafi pólitíska samherja í ráðuneytisstjórastöðu. Þá sé málið viðkvæmt því sú sem hún stendur í málaferlum við sé skrifstofustjóri og yfirmaður ríkislögmanns.

„Mig langar í þessu samhengi að benda á að það er fyrrverandi þingmaður Alþýðubandalagsins í ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytinu. Hefur það einhvern tíma verið gagnrýnt?  Það var flutningur sem var ekki einu sinni auglýstur. Sú kona sem hefur verið að fara yfir þessi mál núna er skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu  og er í raun og veru yfirmaður ríkislögmanns. Svo ég nefni aðeins hvað þetta mál er viðkvæmt og snúið innan stjórnsýslunnar,“ segir Lilja. 

 Aðspurð hvort ekki sé harkalegt að fara í mál við einstakling svaraði Lilja:

„Nei. Ég er ráðherra, ég er líka einstaklingur og verð alveg eins og allir aðrir í  íslensku samfélagi , að geta sótt minn rétt telji ég brotið á mér,“ segir Lilja.   

Málið flóknara en það virðist

Lilja segir að málið hafi verið sér erfitt. 

„Þetta mál hefur tekið mjög mikið á mig. Ég taldi og tel að ég hafi sannarlega verið að breyta rétt,“ segir Lilja.

Aðspurð út í pólitísk tengsl sín við formann hæfnisnefndarinnar, Einar Huga Bjarnason og að hann hafi fengið 15 milljónir greiddar frá mennta-og menningarmálaráðuneytinu svaraði Lilja: 

„Viðkomandi aðili er hæstaréttarlögmaður og einu samskipti mín við hann eru um lögfræði,“ segir Lilja. 

Lilja gerði að umtalsefni að konur væru oft dæmdar harðar en karlar í svona málum. 

„Auðvitað er það þannig að við erum í samkeppni í stjórnmálum og þá er sótt að stjórnmálamönnum. Ég stend við það sem ég gerði og þess vegna fer ég fram á ógildinguna. Það eru mjög margir sem hafa fengið svona mál á sig, borgarstjóri, fjármála-og efnahagsráðherra. Af hverju er þetta meira mál þegar það er kona eins og ég sem um ræðir,“ segir Lilja. 

Lilja bendir á að Viðreisn hefði gengið harkalega fram í gagnrýni á sig. 

„Einn af umsækjunum um stöðuna er systir Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og sá flokkur er mjög framarlega í því að gagnrýna mennta-og menningarmálaráðherra. Þetta mál er aðeins flóknara en það virðist. Þegar það eru konur sem lenda í þessari stöðu þá virðist það vera meira mál,“ segir Lilja. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×