Patríarki serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar látinn af völdum Covid-19 Atli Ísleifsson skrifar 20. nóvember 2020 13:40 Partríarkinn Irinej fyrir miðju í útför klerksins Amfilohije Radovic í Svartfjallalandi í byrjun mánaðar. Irinej greindist með Covid-19 fáeinum dögum síðar. Getty
Æðsti biskup serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, patríarkinn Irinej, er látinn af völdum Covid-19, níræður að aldri. Irinej hafði stýrt útför Amfilohije Radovic, æðsta klerksins í nágrannaríkinu Svartfjallalandi í byrjun nóvember, en Radovic hafði sjálfur látist af völdum Covid-19. Irinej greindist og var svo lagður inn á sjúkrahús með Covid-19 fáeinum dögum síðar. Aleksandar Vucic Serbíuforseti segir í færslu á Instagram að það hafi verið mikill heiður að hafa kynnst Irinej. „Fólk eins og þú deyja aldrei,“ sagði forsetinn. Irinej var mjög íhaldssamur í skoðunum og hafði jafnframt mikil áhrif á sviði stjórnmála. Hann hafði gagnrýnt Serbíustjórn harðlega fyrir að heimila viðburði á borð við réttindagöngur hinsegin fólks og sagt samkynhneigð vera „frávik manneðlis“ Alls eru um 12 milljónir manna innan serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og búa flestir þeirra í ríkjum á Balkanskaga. Rúmlega 104 þúsund manns hafa nú greinst með Covid-19 í Serbíu frá upphafi faraldursins. Þá eru skráð dauðsföll nú rúmlega 1.100.
Serbía Trúmál Andlát Mest lesið Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Egill Þór er látinn Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Flæddi inn í hús á Arnarnesi Innlent Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Innlent Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Innlent Ný ríkisstjórn fundar í dag Innlent Fleiri fréttir Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Sjá meira