Vill að Fernandes og Jorginho verði bannað að taka „hoppvíti“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. nóvember 2020 10:31 Bruno Fernandes í hoppinu sínu. getty/Catherine Ivill
Ian Wright, fyrrverandi framherji Arsenal og enska landsliðsins, vill að sú vítaspyrnutækni sem Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, og Jorginho, leikmaður Chelsea, beita verði bönnuð. Fernandes og Jorginho eru með afar sérstaka aðferð við að taka víti en rétt áður en þeir koma að boltanum hoppa þeir áður en þeir láta vaða. Fernandes tók tvö „hoppvíti“ í leik United og West Brom í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Það fyrra varði Sam Johnstone, markvörður West Brom, en endurtaka þurfti spyrnuna þar sem hann var kominn út af marklínunni. Fernandes skoraði svo úr seinna vítinu. Wright segir að þessi vítaspyrnutækni sé ósanngjörn fyrir markverði og vill láta banna hana. „Þetta er erfitt fyrir markverðina,“ sagði Wright í Match of the Day á BBC á laugardaginn. „Þeir sem taka vítin mega hoppa upp og gera hitt og þetta en markverðirnir mega ekki fara með fótinn af línunni. Það ætti að banna leikmönnum að hoppa. Þeir ættu bara að hlaupa að boltanum og skjóta. Það er ekki sanngjarnt að þeir fái að hreyfa sig en ekki markverðirnir.“ Fernandes klúðraði einnig vítum gegn Newcastle United og Paris Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu. Líkt og gegn West Brom fékk hann að taka vítið gegn PSG aftur og skoraði í seinna skiptið.
Enski boltinn Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Fleiri fréttir Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Sjá meira