Almyrkvi 12. ágúst 2026
1 2 ›
Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Nýtt spásvæði vegna sólmyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst hefur verið gert landsmönnum aðgengilegt en fyrstu veðurspár benda til þess að skil gangi yfir landið með úrkomu og talsverðri skýjahulu. Þá hefur mikið verið rætt um það hvernig dagurinn spilist ef skýjahula dreifist yfir landið stóra sólmyrkvadaginn og því eflaust margir sem munu heimsækja spásvæðið. Innlent 7.8.2026 16:33
Óvissa með sólmyrkvaveður Mikil óvissa er um veðrið á sólmyrkvanum á miðvikudag. Veðurfræðingur segir erfitt að spá í skýjafarið. Skýin ættu ekki að skemma sólmyrkvann en hafa töluverð áhrif á upplifunina að mati stjörnufræðings. Innlent 7.8.2026 12:40
Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Almyrkvar á sólu eru sjaldgæfir atburðir á hverjum stað á jörðinni, þar sem skugginn fellur aðeins á lítið takmarkað svæði. Fræðilega séð gætu almyrkvar lengst varað í 7 mínútur og 31 sekúndu en venjulega eru þeir ekki lengri en 2-4 mínútur. En hver er munurinn á almyrkva, deildarmyrkva og hringmyrkva? og hvað er eiginlega sólmyrkvi? Innlent 7.8.2026 11:31
Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, segir það ekki rétt að börn yngri en tólf ára þurfi að nota gleraugu allan tímann á meðan almyrkvinn stendur yfir þann 12. ágúst. Innlent 7.8.2026 09:46
Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Á Hellissandi rís nú hátíðarsvæði þar sem stefnt er á að taka á móti þúsundum erlendra og innlendra gesta á tónlistar- og viðburðahátíðina Iceland Eclipse. Von er á veðurvél til að tryggja gott veður. Skipuleggjandi segir að búið sé að hugsa fyrir öllu. Fólki verði skutlað í verslun og sund og tiltekt sé þaulskipulögð á meðan og eftir viðburð. Tónlist 6.8.2026 20:00
Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Það þarf ekki að vera heiðskírt, né þarf að vera með kíki til þess að virða sjónarspilið fyrir sér þegar Íslendingar og aðrir sem eru staddir á landinu fá færi á að upplifa einhverja allra fallegustu sýningu náttúrunnar, almyrkva á sólu. Aftur á móti er nauðsynlegt að útvega sér þartilgerð sólmyrkvagleraugu til að vernda augun gegn skaðlegum geislum sólarinnar á meðan deildarmyrkva stendur. Innlent 6.8.2026 11:32
Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Margir hafa látið hugfallast af tilhugsuninni um að almyrkvi skelli á sólu á þessu landi þar sem sólin virðist oft ótíður gestur. Þjóðin þarf þó ekkert að örvænta að mati Stjörnu-Sævars enda þótt illa viðri munum við upplifa skyndilegt svartnætti um hábjartan dag. Innlent 5.8.2026 11:31
Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Bandaríski sjónvarpsþátturinn Good Morning America í samvinnu við ABC News verður með beina útsendingu frá Bláa lóninu á Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst þegar almyrkvi að sólu gengur yfir vestanvert Ísland. Lífið 5.8.2026 10:41
Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar segir útsýnispall á Bolafjalli alveg öruggan þrátt fyrir að sprungur séu í glerveggjum þess. Til stendur að bæta veginn upp fjallið en alvarlegt slys varð þar fyrir um viku. Innlent 4.8.2026 14:07
Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Veginum upp að útsýnispalli Bolafjalls verður lokað 12. ágúst næstkomandi þegar almyrkvi verður á sólu. Búist er við mikilli aðsókn ferðamanna á Vestfirði en almyrkvinn verður aðeins sýnilegur á landinu vestanverðu. Innlent 3.8.2026 07:01
Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Umfangsmiklar götulokanir verða í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi á meðan almyrkvi á sólu sést yfir vesturhluta landsins í ágúst. Hátt í 80 þúsund ferðamenn verða á landinu á meðan á almyrkvanum stendur. Einn helsti stjörnuáhugamaður landsins ætlar sjálfur að fylgjast með sólmyrkvanum heima hjá sér í Reykjavík. Innlent 28.7.2026 19:57
Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu. Þá hefur Neyðarlínan einnig gefið út varanúmer sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112. Neytendur 24.7.2026 13:12
Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ „Við erum þegar búin að selja stóran hluta af miðunum enda gríðarlegur áhugi frá fólki sem vill koma til Íslands og upplifa eitthvað alveg einstakt. Hátíðir sem byggja á almyrkva hafa sterkt aðdráttarafl fyrir fólk sem sækist eftir óvenjulegri upplifun,“ segir Jón Bjarni Steinsson, einn af forsvarsmönnum Iceland Eclipse hátíðarinnar sem haldin verður á Hellissandi á Snæfellsnesi dagana 11. til 15. ágúst. Lífið samstarf 24.7.2026 09:51
Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Páll Einarsson jarðfræðingur biðlar til þeirra sem hafa með skiltið við Bjargtanga að gera að það verði lagfært áður en útlendingar furða sig á landafræðikunnáttu Íslendinga. Sá sem setti skiltið upp segir að þetta sé gamall barnaskólalærdómur sem hafi verið innprentaður í barnsminnið. Innlent 22.7.2026 09:09
Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Bandaríkjamaðurinn John Beattie stendur fyrir sérstakri flugferð þann 12. ágúst næstkomandi, þar sem farþegar munu upplifa lengst mögulega almyrkva í heiminum. Sætið kostar allt að 630 þúsund krónur. Innlent 20.7.2026 12:19
Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Það eru ekki margir dagar sem vitað er með löngum fyrirvara að verði sögulegir. Þann 12. ágúst verður þó einn af þeim dögum. Þá verður almyrkvi á sólu sýnilegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan árið 1954 og í fyrsta skipti frá Reykjavík síðan árið 1433. Skoðun 13.7.2026 11:31
Strandamenn klárir í almyrkvann Strandabyggð tekur þátt í sameiginlegri pöntun á sólmyrkvagleraugum fyrir íbúa á Vestfjörðum og gefur öllum íbúum sérstök sólmyrkvagleraugu. Innlent 10.7.2026 15:35
Sævar Helgi horfir heima Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, upplýsti í kvöldfréttum nýverið að hann ætlaði að fylgjast með almyrkvanum í ágúst á pallinum heima. Skoðun 8.7.2026 08:00
Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Þann 12. ágúst verður almyrkvi á sólu sýnilegur á vesturhluta landsins. Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Vesturland, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga og því má áætla að um og yfir 70% landsmanna séð þetta stórbrotna náttúrundur að heiman frá sér. Á sama tíma verður deildarmyrkvi á öllu landinu austan slóðarinnar en á Norðfirði og Seyðisfirði hylur tunglið 95% af yfirborði sólar. Skoðun 7.7.2026 09:04
Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Fjölmennir ferðamannahópar hafa að undanförnu afbókað gistingu fyrir vestan sem ætluðu að dvelja þar til að upplifa almyrkva á sólu um miðjan ágúst. Starfsmann Vestfjarðastofu grunar að ferðaskrifstofur hafi frátekið gistingu í fleiri en einu landi sem tilheyrir almyrkvaslóðum og séu nú að taka ákvörðun; af eða á. Innlent 6.7.2026 12:55
Vegum lokað og bílar taldir Töluvert af öryggisráðstöfunum verða gerðar á Vestfjörðum vegna almyrkvans þann 12. ágúst næstkomandi. Til að mynda verður veginum um Bolafjall lokað og fari of margir í átt að Látrabjargi verður veginum lokað. Innlent 30.6.2026 21:06
Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum Undirbúningi í tengslum við almyrkvann þann 12. ágúst næstkomandi miðar almennt vel og er hann á mörgum stöðum á lokametrunum. Innlent 27.6.2026 19:55
Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Vísindaskóli unga fólksins á Akureyri er hápunktur sumarsins hjá mörgum en hann er fyrir börn á aldrinum ellefu til þrettán ára. Ýmis námskeið eru á boðstólum og í ár fengu krakkarnir fræðslu um jafnréttismál, málefni norðurslóða, sorpmál og margt fleira. Innlent 25.6.2026 23:45
Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Um tveir mánuðir eru í að almyrkvi sjáist á hluta landsins. Vísindamiðlari segir þetta sögulegan viðburð sem beri að halda upp á og enginn eigi eftir að upplifa aftur. Að mörgu þurfi að huga og ekki sé sama hvenær fólk fari á salernið á þessum einstaka degi. Innlent 13.6.2026 22:39
NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun standa í stórræðum hér á landi í ágúst þegar sólmyrkvinn stendur sem hæst. Flugvélar og loftbelgir koma við sögu. Innlent 10.6.2026 21:20
Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Innviðaráðuneytið hefur ákveðið, á grundvelli tillögu frá Öryggisfjarskiptum, að styrkja sérstaklega úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans 12. ágúst. Innlent 5.6.2026 21:48
Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Stjórnvöld hafa opnað sérstaka upplýsingagátt um almyrkvann sem verður á sólu í ágúst. Þá hafa þau samið við Sævar Helga Bragason, vísindamiðlara, um ráðgjöf varðandi fræðslu um myrkvann og undirbúning stjórnvalda. Viðskipti innlent 1.6.2026 15:29
Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Bandarískir vísindamenn munu nýta loftbelgi til að gera mælingar, sem fjármagnaðar eru af geimferðastofnuninni NASA, á andrúmsloftinu yfir Íslandi. Mælingarnar verða framkvæmdar meðan á sólmyrkvanum stendur í ágúst og snúast um að kanna áhrif myrkvans á lægsta lag veðrahvolfsins. Vísindamennirnir hafa notið aðstoðar Háskóla Íslands, Sævars Helga Bragasonar og fleiri sérfræðinga hérlendis. Innlent 31.5.2026 19:54
Eftir sumarið tekur við óvissa Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir stöðuna góða innan greinarinnar yfir sumarið og sólmyrkvann 12. ágúst vera mikla búbót. Í haust taki þó við óvissa. Viðskipti innlent 29.5.2026 16:59
Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Búist er við holskeflu ferðamanna í ágúst vegna sólmyrkvans og það á versta mögulega tíma, að mati greiningardeildar Landsbankans. Hagfræðingur bankans segir verðbólguspárnar þegar á tæpasta vaði og að sólmyrkvinn gæti orðið þúfan sem veltir hlassinu. Innlent 4.5.2026 20:31