Úlfarnir sóttu þrjú stig til Lundúna 29. nóvember 2020 21:20 Sigurmarkið. vísir/Getty Gestirnir frá Wolverhampton urðu fyrir áfalli snemma leiks þegar Raul Jimenez þurfti að fara af velli eftir að hafa lent í harkalegu samstuði við David Luiz. Þrátt fyrir þetta áfall voru það gestirnir sem gerðu fyrsta markið. Þar var að verki Pedro Neto sem rak smiðshöggið á góða sókn Úlfanna á 23.mínútu. Heimamenn voru fljótir að svara því varnarmaðurinn Gabriel skallaði fyrirgjöf Willian í netið eftir hálftíma. Það voru hins vegar gestirnir sem fóru með forystu í leikhléið því Daniel Podence skoraði á 42.mínútu. Ekkert mark var skorað í síðari hálfleiknum og 1-2 sigur Úlfanna staðreynd. Wolves því í 6.sæti deildarinnar með 17 stig en Arsenal hefur 13 stig í 14.sæti. Enski boltinn