Erlent

Segja Tarrant hafa misheppnast ætlunarverk sitt með árásinni í Christchurch

Samúel Karl Ólason skrifar
Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur beðist afsökunar á þeim mistökum sem rannsóknarnefndin uppgötvaði og segir að tillögum nefndarinnar verði fylgt eftir.
Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur beðist afsökunar á þeim mistökum sem rannsóknarnefndin uppgötvaði og segir að tillögum nefndarinnar verði fylgt eftir. AP/Vincent Thian

Þrátt fyrir að nefnd sem rannsakað hefur hina mannskæðu hryðjuverkaárás í Christchurch í Nýja-Sjálandi, hafi fundið galla á reglugerðum og áherslu, komst nefndin að þeirri niðurstöðu að hið opinbera hefði ekki getað komið í veg fyrir árásina ef þessir gallar og önnur mistök hefðu ekki verið til staðar.

Í mars í fyrra skaut hinn ástralski Brenton Tarrant 51 til bana í tveimur moskum í Christchurch. Hann notaðist við hálfsjálfvirk vopn og sýndi árásina í beinni útsendingu á Facebook með myndavél sem hann var með á hjálmi sínum.

Árásarmaðurinn var dæmdur í lífstíðarfangelsi í sumar.

Í kjölfar árásarinnar var stofnuð sérstök nefnd sem átti meðal annars að kanna aðdraganda árásarinnar og hvort að yfirvöld hefðu getað komið í veg fyrir hana.

Nefndin opinberaði niðurstöður sínar í morgun.

Í stuttu máli segir nefndin engin mistök eða vankanntar á hinu opinbera hafi fundist sem hefðu leitt til þess að ætlanir Tarrant myndu uppgötvast, eins og bent er á í samantekt Guardian.

Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, fjallaði um skýrsluna í morgun sagðist hún að þó að ekki hafi verið hægt að stöðva árásina hafi mistök fundist og baðst hún afsökunar á því.

Hún sagði að ríkisstjórn hennar myndi samþykkja allar tillögur nefndarinnar. Þar á meðal eru tillögur um að stofna nýja leyniþjónustu,

Í niðurstöðum nefndarinnar segir að Tarrant hafi sýnt af sér rasisma frá unga aldri. Hann flutti til Nýja-Sjálands í ágúst 2017 og varði miklum tíma í að skipuleggja og undirbyggja hryðjuverkaárás. Hann átti enga nána vini og forðaðist viðburði.

Þá segir að hann hafi fengið skotvopnaleyfi innan við þremur mánuðum eftir að hann flutti til landsins og það þrátt fyrir að hann hefði litla sem enga sögu í Nýja-Sjálandi. Nefndin segir að ekki hafi verið farið nægilega vel yfir umsókn hans.

Brenton Harrison Tarrant var dæmdur í lífstíðarfangelsi í sumar.AP/John Kirk-Anderson

Þá sagði nefndin einnig að yfirvöld Nýja Sjálands hafi lagt of mikla áherslu á varnir gegn íslamistum og mögulegum hryðjuverkum þeirra.

Einnig kemur fram í skýrslu nefndarinnar að nokkrum mánuðum fyrir árásina hafi Tarrant farið á sjúkrahús eftir að hafa skotið sjálfan sig fyrir mistök. Það skotsár var ekki tilkynnt til lögreglu og segir nefndin að þörf sé á slíkum reglum.

Nefndin segir einnig að Tarrant hafi misheppnast ætlunarverk sitt. Hann hafi ætlað sér að valda óreiðu og óeiningu innan Nýja-Sjálands en það hafi ekki gengið yfir. Þvert á móti hafi Ný-Sjálendingar snúið bökum saman vegna árásarinnar og staðið vörð um gildi þeirra og hvað það þýðir að búa í Nýja-Sjálandi.


Tengdar fréttir

Gáfu frá sér meira en 50 þúsund byssur

Íbúar Nýja-Sjálands hafa gefið frá sér meira en 50 þúsund byssur eftir að skotvopnalög landsins voru hert í kjölfar þess að 51 var myrtur í tveimur moskum í Christchurch í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×