Erindið, auk minnisblaðsins og erindi til Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis frá 4. október, er birt á Facebook-síðu World Class í dag. Erindið er stílað á Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra.
Þar segir Björn að tekjufallið af völdum lokunar líkamsræktarstöðva, í alls um fjóra mánuði á árinu, sé gríðarlegt en tekjufalls- og lokunarstyrkir bæti það einungis að takmörkuðu leyti. Þá segir hann að takmarka megi aðgang að stöðvunum og tryggja fjarlægðarmörk með einföldum hætti, auk annarra ráðstafana sem sóttvarnalæknir mælir með.
„Ég tek eftir því að í nálægum löndum eins og t.d. á Norðurlöndunum eru heilsuræktarstöðvar ekki lokaðar. Meira að segja í löndum þar sem ástand og útbreiðsla sóttarinnar hefur verið mun alvarlegri en hjá okkur, t.d. í Bretlandi, á það sama við,“ segir Björn.
„Ég hef í vaxandi mæli spurt mig þeirrar spurningar af hverju það sama gildi ekki á Íslandi.“ Hann vísar því næst í álitsgerð tveggja lögmanna, þeirra Gests Jónssonar og Hilmars Gunnarssonar hjá Mörkinni lögmannsstofu.
Telja ákvörðunina ekki lögmæta
Þeir telja að ráðherra sé skylt að láta sömu sjónarmið ráða í ákvörðun um að opna rekstur heilsuræktarstöðva og í tilfelli sundstaða og annarrar íþróttaaðstöðu. Ákvörðun um að halda heilsuræktarstöðvum lokuðum þegar opnað er fyrir sambærilega starfsemi sé ekki lögmæt.
„Í ljósi þeirra miklu hagsmuna sem eru af því að heilsuræktarstöðvar landsins fái að hefja starfsemi að nýju fer ég þess á leit að slík ákvörðun verði tekin með þeim takmörkunum einum sem styðjast við málefnaleg rök,“ skrifar Björn í bréfinu.
Í minnisblaði lögmannanna frá 2. desember er jafnframt vísað til þess þegar ákvæði reglugerðar heilbrigðisráðherra frá 19. október heimilaði opnun líkamsræktarstöðva „að uppfylltum ströngum skilyrðum“. Þá var niðurstaða ráðuneytisins á þá leið að ekki væri stætt á því að banna hreyfingu í líkamsræktarstöðvum þar sem unnt væri að uppfylla sömu skilyrði og gilda um íþróttastarf.
Líkamsræktarstöðvar máttu þannig bjóða upp á hóptíma að uppfylltum skilyrðum en margar hurfu þó frá ákvörðun um slíkt í kjölfar gagnrýni.
Fréttastofa hefur ekki náð tali af Birni það sem af er degi. Fleiri eru þó á sama máli og hann; Vísir greindi frá því í gær að eigendur líkamsræktarstöðva íhuguðu nú að höfða mál gegn stjórnvöldum vegna sóttvarnaaðgerða. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að skemmtistaða- og kráareigendur, sem hefur verið gert að hafa lokað síðan í haust, íhuguðu einnig slíka málsókn.
Líkamsræktarstöðvar hafa verið lokaðar nær samfellt síðan 4. október. Með sóttvarnareglum sem taka gildi á fimmtudag er útlit fyrir að stöðvarnar verði lokaðar áfram til 12. janúar hið minnsta.