Til kærleiksþjónustu reiðubúin, í tilefni 25 ára afmælis Djáknafélags Íslands Elísabet Gísladóttir skrifar 9. desember 2020 15:31 Nú í vor fagnaði Djáknafélag Íslands 25 ára afmæli, en félagið var stofnað 5. apríl 1995. Sextíuogtveir djáknar hafa hlotið vígslu og eru um tuttugu starfandi í dag. Það er oftar en ekki sem við erum spurð: Hvað er djákni? Eða hvort að djákni sé hálfgerður prestur? Við erum einnig spurð um hvort við tengjumst djáknanum á Myrká? Til útskýringar þá er hann ekki talinn með í okkar vígsluröð. Aftur á móti er spurning hvort við þyrftum ekki að hugsa til hans af kærleika og biðja fyrir minningu hans? Í sögunni var hann ungur maður og ástfanginn sem lenti í voveiflegu slysi en sálin villtist í myrkri sem hafði þær alvarlegu afleiðingar, sem sagan hermir. Orðið djákni er dregið af orðinu diacon sem þýðir þjónn sem þjónar náunga sínum í kærleika með samkennd (compassion) og hluttekningu (emphathy). Það hefur bæði verið styrkur okkar djákna og veikleiki að við erum með ólíka faglega menntun og bakgrunn. Sum okkar hafa tekið BA í guðfræði sem djáknar, en aðrir hafa tekið djáknafræðin sem (diploma) til viðbótar við aðra fagmenntun eins og hjúkrunarfræðinga, kennara, félagsráðgjafa, lýðheilsufræðinga eða aðra þá menntun sem hægt er að nýta djáknafræðin til viðbótar í starfi. Við djáknar þjónum í söfnuðum í barna-, unglinga- og eldriborgarastarfi, á sjúkrahúsum, á hjúkrunarheimilum, í heilsugæslu, í skólum og ýmsum félagasamtökum svo eitthvað sé nefnt. Þó störf okkar geti verið ólík á hverjum stað er sálgæsla sameiginleg áhersla okkar og fagleg nálgun ásamt því að vinna í samfylgd og samkennd sem byggir á kærleika í verki, óháð neinni aðgreiningu eða trú. Í okkar huga erum við öll börn Guðs og hvert og eitt okkar er elskuvert hver sem við erum eða hvaðan sem við komum. Þó svo að kærleiksþjónustuverkefnin séu fjölmörg þá hafa djáknar í undantekninga tilfellum fengið 100% störf. En af því að við störfum af hugsjón og gleði, finnum við okkur bara önnur hlutastörf til að ná nauðsynlegri framfærslu. Í dag ber mikið á andlegri vanlíðan í samfélaginu. Færri vita að kirkjan tekur á móti þeim sem til hennar leita og er einfalt að hringja í kirkjuna sína til að leita styrks. Eftir áföll eða missi erum við til staðar til að styðja fólk að fara í gegnum sorgina/áföllin, hlusta og fylgja þeim eftir. Sorgin tekur sinn tíma hún er ekki sjúkdómur en við getum fundið fyrir henni bæði í líkama og sál. Þá er gott að hafa einhvern við hlið sér til að hlusta og styðja sig í gegnum þann tíma sem hún er hvað sárust til að læra að lifa með henni. Þó svo oft sé talað um að þjóðin sé að fara í gegnum erfiðleika sem koma fram í andlegri vanlíðan þá eru við ekki alltaf veik þó okkur líði illa eða kvíðin, heldur getur það verið hluti af lífinu að takast á við erfiðleika. Gott er að vita að að lífið er upp og niður hjá öllum og allir fara í gegnum lífsins ólgusjó einhvern tíma á ævinni. Þetta kallar á þol og seiglu sem við þurfum að vera meðvituð um og virkja á þeim stundum. Það er ótrúlegt hvað ein lítil bæn hjálpar. Að gefa sér tíma, loka augunum lyfta huga og hjarta upp í kærleiksljós Krists og biðja eða bara vera, eitt andartak. Þetta er aðgengilegt fyrir alla, alltaf og hvar sem er. Starf djákna á hjúkrunarheimilum er m.a. að viðhalda/auka lífsgæði íbúana (sem eru þau viðkvæmustu í okkar samfélagi) með að virkja andlegra færni sem felst m.a. í bænaiðkun, helgistundum, minnisþjálfun, í máli og myndum, fara í gegnum lífssögur, hlusta á fjölbreytta tónlist, þjálfa hugrækt, slökun og öndunaræfingar svo eitthvað sé nefnt. Einnig er það í hlutverki okkar djáknanna að sinna persónulegri sálgæslu og fylgja einstaklingum í gegnum lífslok og hjálpa aðstandendum þeirra í þeim aðstæðum hvernig þeir geti stutt ástvin í gegnum lokastundir lífsins. Á hjúkrunarheimilum erum við eins og stór fjölskylda sem vinnum stöðugt að hlúa að íbúum og byggja upp traust. Í niðurskurði stjórnvalda á rekstri hjúkrunarheimila eru djáknar það fyrsta sem skorið er niður. Í dag er aðeins hjúkrunarheimilið Sóltún sem enn hefur starfandi vígðan djákna. Það má velta því fyrir sér hvort yfirvöld hafa ekki áttað sig á að manneskjan er ekki bara líkaminn heldur,erum við félagsverur með tilfinningar, sál, anda og trúarþörf sem þarf að sinna ekki síður en skrokknum. Til dæmis þegar við förum saman með bænirnar með íbúum (sem oft á tíðum hafa misst mikla færni vegna heilabilunar eða alzheimers) þá muna þau þær og taka undir og upplifa þá vellíðan sem hefur varðveist í minni þeirra frá barnæsku. Þetta kallar fram vellíðunarhormón sem þau taka með sér inn í daginn, eykur lífsgæði og gerir allt líf þeirra betra. Þegar horft er um öxl þá er það þakklæti fyrst og fremst sem stendur upp úr, að fá að þjóna öllu því yndislega fólki sem við höfum mætt á þessum árum bæði í gleði og sorg. Verið er að vinna að stefnumótun díakoníu- eða kærleiksþjónustu kirkjunnar. Mikið af því góða starfi sem veitt er af starfsfólki kirkjunnar fer hljóðlega fram. Við vitum að það eru margir sem gætu nýtt kærleiksþjónustu kirkjunnar betur og vonumst við til að djáknum verði fjölgað til að geta verið til staðar og þjóna þeim sem þurfa í meiri mæli í framtíðinni. Því uppskeran er mikil en verkamennirnir fáir. Að lokum vil ég óska landsmönnum öllum og þjóðum heims gleðilegra jóla og blessunar á nýju ári. Höfundur er formaður Djáknafélags Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þjóðkirkjan Trúmál Mest lesið Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson Skoðun Er Ísland orðið of dýrt fyrir venjulegt líf? Valerio Gargiulo Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen Skoðun ESB fyrir elítuna – eða almenning í landinu? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun Hvenær heyrði hann já? Helga Benediktsdóttir Skoðun Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur Davíð Már Sigurðsson Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson Skoðun Hafró setur kíkinn fyrir blinda augað Kjartan Sveinsson Skoðun Framúrakstur á ekki að ráðast af þolinmæði og heppni Hólmar Erlu Svansson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hafró setur kíkinn fyrir blinda augað Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar Skoðun Að þora ekki að ræða við nágranna sína Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Umhverfisvænn söngvari óskast Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvenær heyrði hann já? Helga Benediktsdóttir skrifar Skoðun Framúrakstur á ekki að ráðast af þolinmæði og heppni Hólmar Erlu Svansson skrifar Skoðun Skæri fyrir örvhenta Þórgunnur Oddsdóttir skrifar Skoðun Þegar þögn laganna verður að banni Bergur Hauksson skrifar Skoðun Ljósmyndin á öld lögvakans Kristján Loftsson skrifar Skoðun Af hverju heldur Gigtarfélagið fjölskylduhátíð? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Er Ísland orðið of dýrt fyrir venjulegt líf? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun ESB fyrir elítuna – eða almenning í landinu? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að skapa heilrænt samfélag einstaklinga frá mörgum löndum jarðar Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Að skrúfa í sundur flugvél á flugi Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Auðvaldið, popúlismi, hestaskeifan & ESB Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Þarf Ísland að vera dýrasta land í heimi? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hér kemur staðreynd: það er ekki til neinn Evrópuher Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Nágrannakærleikur í arkitektúr samanber náungakærleikur Halldóra Arnardóttir skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Að kjósa tækifæri, eða hafna því Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun ESB-Pakkinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gat þess ekki að við myndum borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson. skrifar Skoðun Friður á Segulfirði Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson Skoðun
Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen Skoðun
Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar
Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar
Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Að skapa heilrænt samfélag einstaklinga frá mörgum löndum jarðar Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson Skoðun
Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen Skoðun
Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun