Skoðun

Til­vistar­kreppa borð­stofunnar

Gunnar Salvarsson skrifar

Tímans þungi niður hefur margt tekið frá okkur sem komin eru langt á þroskabrautinni. Margt í samfélaginu hefur horfið eins og mjólkurbúðirnar og landsprófið. Heimilin hafa orðið sérstaklega illa fyrir barðinu á breytingum. Ein mesta eftirsjáin er af stássstofum og húsbóndaherbergjum. Margt annað, eins og kompur sem kölluðust barnaherbergi, skipta líka máli þótt eftirsjáin sé lítil. Og nú er enn ein atlagan gerð að heimilunum. Eins og þau hafa nú mátt þola margt.

Ég las á dögunum grein í virðulegu bresku dagblaði um tilvistarkreppu borðstofunnar. Samkvæmt könnun hefur nær fjórðungur breskra húseigenda breytt borðstofunni í eitthvað allt annað, oft skrifstofu eða leikherbergi. Fjarvinna eða heimavinna er sögð helsta skýringin á þessari breytingu. Hvert rými þarf að réttlæta tilveru sína.

Sjálfur sit ég við borðstofuborðsenda með tölvuna fyrir framan mig og hef gert frá því ég var rekinn úr vinnunni, vegna kennitölunnar. Borðið hefur þannig fengið aukið hlutverk. Hér er lesið, teflt og skrifað en það er enn hægt að leggja á borðið þegar tilefni gefst. Og tölvan fer þá í felur.

Ég gæti ímyndað mér að síðasta stóra breytingin innan veggja heimilisins hafi verið þegar eldhús, stofa og borðstofa gengu í eina sæng. Þrjú rými urðu að einu. Steikarstybban úr eldhúsinu hélt innreið sína í stofuna. Þá voru búrin löngu farin, konur hættar að rulla þvott og enginn þurfti út í kolaskúr að sækja eldivið. Sjálfur ólst ég upp við kolakyndingu, til þess að gera kornungur maðurinn.

Ég hef áhyggjur af borðstofunni og afdrifum hennar. Segi það satt.

Á mörgum heimilum eru engin skörp skil á milli vinnu og einkalífs. Margir taka vinnuna með sér heim, vinna að einhverju leyti í fjarvinnu með tölvuna á borðstofuborðinu, sófaborðinu eða á rúmstokknum. Og þegar fólk er á kafi í vinnunni heima hjá sér hættir því eðlilega til að gera lítinn greinarmun á því hvenær það er sérfræðingur hjá fjármálastofnun eða ábyrgðarfullt foreldri með kornabarn.

Borðstofan og sérstaklega borðstofuborðið hefur þurft að gjalda fyrir þessa þróun, sem má alveg ræða hvort er til góðs eða ills. Hlutfall starfandi fólks sem vann eitthvað heima var samkvæmt innlendri könnun um þrjátíu prósent fyrir heimsfaraldurinn hérna um árið, fór upp í tæp fjörutíu og sjö prósent í byrjun árs 2022 og hefur síðan haldist yfir fjörutíu prósent. Þetta fólk er ekki allt með sérstaka skrifstofu heima hjá sér. En einhvers staðar þarf tölvan að vera.

Líkast til er fullsnemmt að kveðja borðstofuna. Hún á vissulega í vök að verjast. Fer fyrir henni eins og húsbóndaherbergjunum og stássstofunum? Stórt er spurt.

Um tíu ára skeið bjuggum við hjónin í Sigvaldahúsi sem byggt var rétt fyrir 1950. Þar voru tvær flennistórar stofur, húsbóndaherbergi, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi, hvort á stærð við skáp. Á þeim tíma þegar húsið var byggt voru börn líka bara óvitar, langt fram eftir aldri. Krakkagrislingar áttu að hafa hljótt og hlýða. Ekki tala við fullorðna nema á þá væri yrt.

Þótt uppeldisfræðingar hafi komið með þá kenningu á átjándu öldinni út í útlöndum að leikur væri börnum nauðsynlegur í námi og þroska komu þær upplýsingar ekki með haustskipunum til Íslands. Leikherbergi fyrir börn á heimilum eru til þess að gera nýtt fyrirbæri. Við systkinin lékum okkur oftast á stofugólfinu, nema þegar foreldrarnir fóru að heiman. Þá fórum við strákarnir í handbolta á ganginum með ullarsokk í stað bolta. Það fór ekki alltaf vel því lampaljós voru við spegil í ganginum.

En það var ekkert sérstakt leikrými. Allir leikir barna þurftu að falla að lífi fullorðna fólksins. Við systkinin vorum til dæmis afskaplega dugleg að horfa á afa okkar leggja kapal. Við völdum okkur hjarta, spaða, tígul eða lauf og héldum með þeirri sort. Hver vann fór svo eftir því hvernig spilin röðuðust á dívaninn hans afa. Laufið var þó aldrei vinsælt hjá okkur. Veit ekki af hverju. Lauf og nóló voru hugtök sem við bárum litla virðingu fyrir. Þessi leikur fór vel í fullorðna fólkið. Við sátum þögul og fylgdumst spennt með framvindunni. Engin læti. Enginn hávaði. Enginn grátur.

Stássstofur eru líka að mest horfnar, er það ekki? Ég var tíður gestur á heimili um tvítugt þar sem voru tvær borðstofur, önnur til hvunndagsbrúks en hin spari. Stássstofan var einungis opnuð á helgum dögum og hátíðisdögum. Á sunnudögum var alltaf ofnbakað lambalæri með rauðkáli og sultu og þessi dásamlegi sveskjugrautur með rjóma í eftirrétt. Bestu dagarnir.

Já, bestu dagarnir fyrir alla aðra en húsmæðurnar. Þær voru nánast ósýnilegar og fengu litla hjálp. Gerðu allt. Blessunarlega hefur staða konunnar (bak við eldavélina eins og eitt sinn var sagt) breyst og karlanir komið sterkir inn í eldhúsið. Og hvað gerðist þá? Allir fóru að borða skyndimat, tilbúna rétti!

Meira að segja heilaga stundin sem kvöldverðurinn var á íslenskum heimilum áratugum saman er í útrýmingarhættu. Margir gleypa einfaldlega eitthvað á þeytingi og borða þegar maginn kallar, ekki klukkan 19:00 þegar kvöldmaturinn á að hefjast. Og sjáist einhversstaðar fjölskylda setjast niður yfir kvöldverð, aðkeyptan eða eldaðan, eru flestir við borðið með nefið ofan í símanum. Samverustundin þar sem allt heimilisfólk kom saman við kvöldverðarborð (borðstofuborð) og ræddi um viðburði dagsins má muna fífil sinn fegurri.

Svona horfir maður á lífið sigla framhjá með alls konar breytingum. Alls ekki öllum til góðs eða framfara. Þurfum við ekki að taka samtalið….?

Við gætum jafnvel byrjað við borðstofuborðið. Ef það er laust.

Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður.




Skoðun

Sjá meira


×