Skreytum hús: „Alin upp við að jóla yfir mig á hverju einasta ári“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 15. desember 2020 07:01 Í nýjum þætti af Skreytum hús er fylgst með Soffíu Dögg skreyta heimili sitt á Álftanesi. Skreytum hús Í lokaþættinum af Skreytum hús sýndi Soffía Dögg Garðarsdóttir hvernig hún skreytir eigið heimili fyrir jólin. Þar má finna fullt af innblæstri, hugmyndum og góðum ráðum varðandi jólaskreytingar heimilisins.
Soffía Dögg viðurkennir sjálf að byrja stundum að skreyta í október, enda alltaf verið mikið jólabarn. „Ég hef alltaf verið ótrúlegur dótasafnari, það er bara svoleiðis. Ég hef alltaf verið rosalega mikið jólabarn, mamma og pabbi skreyttu rosa mikið.“ Í þættinum má sjá hvernig heimili Soffíu Daggar kemst í fallegan jólabúning fyrir hátíðarnar, með skrauti sem var nú þegar til á heimilinu og svo kíkti hún einnig í búðir. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Skreytum hús - 6. þáttur Aldrei rauð jól á Álftanesinu Síðasti þátturinn af Skreytum hús var einstaklega persónulegur, enda bauð þáttastjórnandinn Soffía Dögg áhorfendum inn á heimili sitt á Álftanesi. Þar sýndi hún meðal annars magnið sem hún á af jólakössum uppi á háalofti. „Ég er bara alin upp við að jóla pínulítið yfir mig á hverju einasta ári,“ viðurkennir Soffía Dögg í þættinum. Það þarf svosem ekki að koma neinum á óvart, því skreytingar heimilisins eru hennar atvinna í dag. Soffía Dögg segir að hún hafi alltaf verið mikið jólabarn. Hún jólaskreytir því oft í tvo mánuði á ári.Soffía Dögg „Jólin mín eru ekki rauð, það eru svo margir sem tengja rauðan við jólin og ég er ekki þar,“ útskýrir Soffía. Hvíti liturinn spilar því stórt hlutverk í hennar jólaskreytingum. Burstatré eru í miklu uppáhaldi hjá Soffíu, sem notar ekki rautt jólaskraut.Soffía Dögg „Svo er bara ótrúlega gaman að kíkja í búðirnar og skoða hvað er til, því það er alltaf eitthvað nýtt sem maður sér sem kveikir svo margar nýjar hugmyndir.“ Þessir hnotubrjótar náðu athygli Soffíu í búðunum fyrir þessi jól.Soffía Dögg „Dass af glimmeri“ Hjá Soffíu var það meðal annars grenilengja með glimmeri í ár auk fallegra hreindýra og hnotubrjóta. Hvítu jólatrén hefur Soffía Dögg notað hver jól frá árinu 2002Soffía Dögg Soffía keypti sér svo svarta hillu til þess að ná að koma fyrir meira af jólaskrauti, það verður ekki annað sagt en að fagurkerinn Soffía hugsi í lausnum. „Burstatré eru í rosalegu uppáhaldi hjá mér og svo má aldrei gleyma dassi af glimmeri.“ Krukkurnar notar Soffía allan ársins hring en um hátíðarnar fara þær í jólabúning.Soffía Dögg Soffía hefur þá hefð að nota gömlu B&G Juleaften diskana fyrir forréttinn á jólunum. Sjálf kýs hún að hafa allan matinn til hliðanna og á eyjunni í eldhúsinu og skreyta miðju borðsins fyrir aðfangadagskvöld. Soffía notar löbera til þess að skreyta veisluborðið. Þar má sjá nýtt og gamalt stell blandast saman á fallegan hátt.Soffía Dögg „Mér finnst svo gaman að skreyta fyrir þessa hátíð og þetta er eitthvað sem ég nýt þess að gera.“ Hundurinn Moli virðist kunna vel við sig í jólaskreyttri forstofunni.Soffía Dögg Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús má finna frekari upplýsingar um jólaskreytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta heimilinu fyrir hátíðarnar. Soffía Dögg gerð „moodboard“ til að sýna betur þemað í jólaskreytingunum í ár.Soffía Dögg Hægt er horfa á lokaþátt Skreytum hús í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir hafa verið sýndir á þriðjudögum hér á Vísi og má einnig finna þá Stöð 2 Maraþon.
Jól Skreytum hús Hús og heimili Tíska og hönnun Tengdar fréttir Skreytum hús: Meðferðarheimili gert að fallegu hreiðri „Hlaðgerðarkot er elsta nústarfandi meðferðarstofnun landsins,“ segir Helga Lind Pálsdóttir forstöðukona. Í fimmta þætti af hönnunarþáttunum Skreytum hús er kvennaálman á Hlaðgerðarkoti tekin í gegn. Soffía Dögg Garðarsdóttir sá strax að þarna þyrfti að taka mikið til hendinni og vildi hún endilega leggja sitt af mörkum. 8. desember 2020 07:00 Skreytum hús: Barnaherbergjum breytt í ævintýraheim „Þegar við fluttum inn þá máluðum við og komumst svo ekkert lengra,“ segir Alda Dröfn Guðbjörnsdóttir „um barnaherbergin tvö á heimilinu sem var tekið fyrir í nýjasta þætti af Skreytum hús. Ekkert var á veggjum og herbergin því ekki fullkláruð. Skápahurðir voru farnar að gulna og gardínustangir ekki í réttri hæð. 1. desember 2020 09:30 Skreytum hús: Hjónaherbergið gert „rómó og kósý“ „Við erum búin að vera að græja og gera ýmislegt. Við fluttum hingað inn fyrir tveimur árum , segir Ásdís Hanna Pálsdóttir en hún býr ásamt eiginmanni og fjórum börnum í Hafnarfirði. „Hjónaherbergið hefur alltaf setið á hakanum.“ 24. nóvember 2020 09:30 Aðventukransar að hætti Skreytum hús Fyrsti í aðventu er á sunnudaginn og því margir sem ætla að setja upp aðventuskreytingar um helgina. Við fengum Soffíu sem sér um Skreytum hús þættina hér á Vísi, til þess að sýna lesendum aðventuskreytingarnar á heimilinu í ár. 27. nóvember 2020 09:30 Mest lesið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona Lífið „Getur líka fengið Óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki“ Lífið „Nýja heimsskipanin:“ Leynileg áætlun um heimsyfirráð í undirbúningi? Lífið Bannað að hlæja: Stressið allsráðandi í upphafi kvöldsins Lífið Heitir og hýrir flugþjónar í suðrænni stemningu Lífið Katrín og Markus orðin tveggja barna foreldrar Lífið Benedikt og Sunneva Einars selja slotið Lífið Emilíana Torrini einhleyp Lífið Heitasti plötusnúður í heimi í Melabúðinni Lífið Fleiri fréttir Hönnunarverðlaunin 2024: Verðlaunuð fyrir Smiðju Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Líf og fjör hjá Íslendingum á virtri hátíð í Berlín Fagurfræði: Það sem flestir hræðast þegar kemur að förðun Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Heitustu skvísur landsins skáluðu fyrir Ástrós Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum? „Mér leið eins og alvöru prinsessu“ Sjá meira
Skreytum hús: Meðferðarheimili gert að fallegu hreiðri „Hlaðgerðarkot er elsta nústarfandi meðferðarstofnun landsins,“ segir Helga Lind Pálsdóttir forstöðukona. Í fimmta þætti af hönnunarþáttunum Skreytum hús er kvennaálman á Hlaðgerðarkoti tekin í gegn. Soffía Dögg Garðarsdóttir sá strax að þarna þyrfti að taka mikið til hendinni og vildi hún endilega leggja sitt af mörkum. 8. desember 2020 07:00
Skreytum hús: Barnaherbergjum breytt í ævintýraheim „Þegar við fluttum inn þá máluðum við og komumst svo ekkert lengra,“ segir Alda Dröfn Guðbjörnsdóttir „um barnaherbergin tvö á heimilinu sem var tekið fyrir í nýjasta þætti af Skreytum hús. Ekkert var á veggjum og herbergin því ekki fullkláruð. Skápahurðir voru farnar að gulna og gardínustangir ekki í réttri hæð. 1. desember 2020 09:30
Skreytum hús: Hjónaherbergið gert „rómó og kósý“ „Við erum búin að vera að græja og gera ýmislegt. Við fluttum hingað inn fyrir tveimur árum , segir Ásdís Hanna Pálsdóttir en hún býr ásamt eiginmanni og fjórum börnum í Hafnarfirði. „Hjónaherbergið hefur alltaf setið á hakanum.“ 24. nóvember 2020 09:30
Aðventukransar að hætti Skreytum hús Fyrsti í aðventu er á sunnudaginn og því margir sem ætla að setja upp aðventuskreytingar um helgina. Við fengum Soffíu sem sér um Skreytum hús þættina hér á Vísi, til þess að sýna lesendum aðventuskreytingarnar á heimilinu í ár. 27. nóvember 2020 09:30