Innlent

Segir frumvarp um kynrænt sjálfræði ómanneskjulegt og fornaldarlegt öfgamál

Samúel Karl Ólason skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Vísir/Vilhelm

Þingmenn Miðflokksins mótmæltu frumvarpi um kynrænt sjálfræði í pontu Alþingis undir kvöld. Frumvarpinu er ætlað að banna ónauðsynlegar aðgerðir á kynfærum barna og Miðflokksmenn eru sagðir standa einir gegn því á Alþingi.

Þingkona Viðreisnar sagði málflutning þeirra eins og verið væri að ræða við menn sem hafi verið að stíga út úr tímavél.

Mótmæli Miðflokksins snúa í grunninn að börnum sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni og eru látin ganga í gegnum lyfjagjöf og aðgerð eftir að foreldrar ákveða kyn þeirra.

Meðal annars stigu Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason í pontu og lýstu yfir áhyggjum sínum vegna málsins. Þar á meðal vegna mögulegs eineltis. Bergþór sagði málið undarlegt og tengdi það við fóstureyðingar.

Staðhæfði hann að ákveðnir þingmenn væru þeirrar skoðunar að „barn megi deyða í móðurkviði, alveg fram að fæðingu en strax þegar barnið sé fætt, þá megi ekki lækna það.“

Rætt var við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Sigmundur skrifaði pistil um málið í gær þar sem hann hélt því fram að verið væri að keyra frumvarpið í gegn án umræðu í samfélaginu.

Samtökin 78 og Mannréttindaskrifstofa Íslands sendu inni umsagnir þar sem lýst var yfir stuðningi við frumvarpið.

Sigmundur sagði í fréttunum í kvöld að málið snerist ekki um réttindi transfólks eða intersex fólks.

„Þetta er ómanneskjulegt, fornaldarlegt öfgamál sem felur í sér að börn fá ekki lengur lækningu við meðfæddum kvillum, sem að þó eru í sumum tilfellum auðlæknanlegir, og börn hafa fengið lausn sinna mála hvað þetta varða áratugum saman og notið meiri lífsgæða fyrir vikið.

Nú á að koma í veg fyrir það. Í rauninni leggja ban við slíkri lyfjagjöf og slíkum aðgerðum og gera það undir merkjum einhvers allt annars.“

Segir Miðflokksmenn eina á báti

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingkona Viðreisnar, sagði engan á þinginu sammála þeim Miðflokksmönnum. Það væri eini flokkurinn sem stæði gegn þessu. Allar umsagnir væru jákvæðar.

„Málið er unnið í Forsætisráðuneytinu og þetta mál snýst einmitt um það að afnema þessa ljótu forsögu um að börn séu látin sæta óafturkræfum aðgerðum gegn vilja sínum.“

Hún sagði þetta mjög augljóst réttindamál og allir ættu að vera, og væru í rauninni, sammála um.

„Mér finnst eins og, nú er ég búinn að hlusta á Miðflokkinn hérna í kvöld, eins og maður sé að tala við menn sem eru að stíga út úr tímavél.“

Þá bætti Sigmundur við að fólk ætti að lesa um málið og fullyrti að enginn þingmaður Sjálfstæðisflokksins eða Framsóknarflokksins hefði gert það. Annars myndu þeir ekki styðja við frumvarpið.


Tengdar fréttir

Mikilvægt að öll lög landsins verði kynhlutlaus

Formaður Samtakanna 78 segir mikilvægt að gera breytingar á lögum landsins í þá veru að öll lög verði kynhlutlaus. Frumvaprsdrög þess efnis eru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

Vantar mannskap til að halda uppi transteymi

Transteymi BUGL hefur verið lagt niður vegna manneklu en samkvæmt lögum skal þverfaglegt teymi sinna börnunum. Hvorki fjármagn né starfsfólk fylgdi lagasetningunni. Móðir transdrengs segir heilbrigðisyfirvöld þurfa að hysja upp um sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×