Man. United fór illa með erkifjendurna Anton Ingi Leifsson skrifar 20. desember 2020 18:22 Scott McTominay skoraði tvö mörk á fyrstu þremur mínútum leiksins. Hann átti skínandi leik. Michael Regan/Getty Images Manchester United gerði sér lítið fyrir og vann 6-2 sigur á Leeds er erkifjendurnir mættust í úrvalsdeildinni í fyrsta skipti í sextán ár. Það voru ekki liðnar tvær mínútur er Scott McTominay kom United yfir og skoski miðjumaðurinn tvöfaldaði forystuna einungis mínútu síðar eftir laglega sendingu frá Anthony Martial. Scott McTominay is the first player in Premier League history to score twice in the first three minutes pic.twitter.com/xGYff4sstS— B/R Football (@brfootball) December 20, 2020 United menn voru ekki hættir. Bruno Fernandes kom United í 3-0 með þrumuskoti á tuttugustu mínútu og stundarfjórðungi síðar skoraði Victor Lindelöf fjórða markið eftir hornspyrnu. Algjör niðurlæging. Liam Copoper náði þó að minnka muninn fyrir hlé. 4-1 í hálfleik og Marcelo Bielsa gerði tvær breytingar í hálfleik og reyndi að hrista aðeins upp í liðinu hjá nýliðunum. Leeds byrjaði seinni hálfleikinn ágætlega og David de Gea varði meðal annars ver frá Rafinha úr dauðafæri. Það voru hins vegar United menn sem skoruðu sjötta mark leiksins og fimmta mark United er Daniel James skoraði eftir skyndisókn. Anthony Martial féll í teignum eftir 70 mínútna leik og Anthony Taylor benti á punktinn. Bruno Fernandes skoraði af miklu öryggi en þremur mínútum síðar minnkaði Stuart Dallas muninn með frábæru marki. Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 6-2. Man Utd have scored 6+ goals in a Premier League game for the first time since Alex Ferguson departed the club.The first time in nine years. pic.twitter.com/rJUfqUx1pt— Squawka Football (@Squawka) December 20, 2020 Man. United er í þriðja sætinu með 26 stig og eru fimm stigum á eftir toppliði Liverpool en United á þó leik til góða. Leeds er í fjórtánda sætinu með sautján stig. Fótbolti Enski boltinn