Gylfi Þór skaut Everton upp í annað sæti Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. desember 2020 21:50 Gylfi Þór tryggði Everton sigur í kvöld. Alex Pantling/Getty Images Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eina mark Everton í 1-0 sigri á Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðin mættust á Brammall Lane í Sheffield. Sigurinn lyftir Everton upp í annað sæti deildarinnar. Gylfi Þór hóf leikinn á miðju Everton en Íslendingurinn hefur verið frábær í undanförnum leikjum er Everton hefur fundið taktinn á nýjan leik. Leikur kvöldsins var ekki mikið fyrir augað en Sheffield United situr sem fastast á botni ensku úrvalsdeildarinnar og leggja því mikið upp úr stífum varnarleik þessa dagana. Staðan í hálfleik var markalaus og raunar var hún þannig allt fram á 80. mínútu leiksins. Þá fékk Gylfi Þór sendingu frá Abdoulaye Doucoure hægra megin í vítateig Sheffield United. Íslenski landsliðsmaðurinn lagði boltann fyrir sig og sendi hann þéttingsfast í vinstra markhornið. It was only heading in one place when it left Gylfi's boot #SHUEVE pic.twitter.com/e4Zak3TM2x— Everton (@Everton) December 26, 2020 Reyndist það eina mark leiksins og Everton fór með 1-0 sigur af hólmi, þeirra þriðji sigur í röð. Sigurinn lyftir Everton upp í 2. sætið ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið hefur leikið 15 leiki. Á sama tíma situr Sheffield sem fastast á botni deildarinnar. Enski boltinn Fótbolti