„Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 18. september 2026 20:39 Einar Guðnason þjálfari Víkings. vísir Víkingur heimsótti Fram á Lambhagavöllinn í kvöld þegar fyrsta umferð úrslitakeppni Bestu deild kvenna hélt áfram göngu sinni. Það er þéttur pakki í neðri hlutanum og var Einar Guðnason þjálfari Víkinga ósáttur með að fara ekki með meira en stig heim. „
Ég er mjög svekktur því við vorum betri aðilinn í þessum leik og fáum miklu betri færi“ sagði Einar Guðnason þjálfari Víkinga svekktur eftir leik. „Við fáum til dæmis skalla á marklínu eða kannski metersfæri á síðustu sekúndu leiksins og gerðum alveg nóg til að vinna leikinn og það svíður mjög hvað Fram þurfti að hafa lítið fyrir því að skora sín mörk og þetta er bara ótrúlega svekkjandi“ Víkingur lenti undir í leiknum en gerði virkilega vel í að snúa leiknum aftur sér í hag áður en þær fengu svo jöfnunarmark á sig undir lok leiks. „Mér fannst þetta fyrsta mark koma gegn gangi leiksins. Við vorum búnar að fá færi og vorum að stýra ferðinni en svo kannski slökknaði á okkur eftir það“ „Við komum svo mjög grimm til baka í síðari hálfleik og skorum flott mark. Við erum að herja á þær og skorum annað og þá fer eitthvað kjaftæði í gang hérna og við fáum á okkur mark úr horni sem að við vorum búnar að fara margsinnis yfir hvað við ættum að gera ef þær fengju svona horn á okkur“ „Svo fáum við færi hérna í lokin sem að við hefðum geta og meira að segja tvö sem við hefðum átt að skora úr en gerðum ekki og það er dýrt“ Víkingar fengu tvö rauð spjöld á bekkinn á loka mínútum leiksins en fyrst fékk Jón Páll Pálmason rautt eftir að Víkingar komust yfir og svo í uppbótartíma fékk styrktarþjálfarinn Mikael Uni Karlsson Brune líka rautt spjald. „Hann býr þetta til fjórði dómarinn algjörlega upp á einsdæmi. Hann fékk bara ekki nóga athygli þannig hann þurfti að koma sjálfum sér í mynd því að Jón Páll er að tala við leikmanninn okkar og endurskipurleggja eftir að við skorum mark og ég er hérna fyrir innan að taka á móti Jasmín [Erlu Ingadóttur] sem er að koma útaf“ „Við erum ekki tveir í boðvangnum, hann er að kalla inn á og hann fær gult spjald fyrir að kalla inn á afþví hann hélt eða ég veit ekki hvað hann hélt. Hann er kannski með of dimman málróm eða eitthvað og þá kallar hann Bríet til og hún spjaldar hann og gefur honum svo annað gult því hann er að reyna útskýra fyrir henni hvað er í gangi“ „Þetta er bara farsi og algjör óþarfi og svo fær Mikki rautt þegar hann sparkar í einhvern stól þegar honum fannst við eiga að fá víti hérna í lokin“ „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu þarna og þetta er bara þeirra leið til þess að komast á blöðin held ég“ Víkingar horfa á þetta sem tvö töpuð stig hér í kvöld. „Við erum með yfirburði í þessum leik og eigum að vinna þennan leik. Mögulega snýst það móment með þessu atviki hérna í lokin, Jón Páll hefði kannski bara átt að um leið og Bríet kemur að setjast niður, ég veit það ekki en hann lærir af því“ „Auðvitað svíður þetta gríðarlega því við vorum betri aðilinn í þessum leik og það er dýrt að vinna ekki þennan leik en við komum til baka sterkari og það er bara næsti leikur. Ef við spilum svona þá vinnum við næsta leik“ sagði Einar Guðnason.
Víkingur Reykjavík Besta deild kvenna Fótbolti Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía og stöllur í góðum gír Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun „Sóknarleikurinn vel smurður“ Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Sjá meira