Viðskipti innlent

Þátttaka almennings á markaði aldrei verið meiri

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Magnús Harðarson telur að viðskipti muni halda áfram að aukast. 
Magnús Harðarson telur að viðskipti muni halda áfram að aukast.  Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Heildarfjöldi viðskipta í Kauphöll í desember var sá mesti á hlutabréfamarkaði frá fjármálahruni og viðskipti með bréf Icelandair hafa aldrei verið fleiri. Forstjóri Kauphallarinnar telur að þetta megi rekja til aukins áhuga almennings á hlutabréfaviðskiptum.

Þrátt fyrir svartsýnar spár um möguleg áhrif kórónuveirunnar á markaði hafa viðskiptin sjaldan verið meiri. Þannig var heildarfjöldi viðskipta í desember sá mesti á hlutabréfamarkaði eftir fjármálahrunið 2008 og viðskiptum fjölgaði um sextíu prósent á milli ára. Heildarfjárhæð viðskiptanna var þó sú sama sem rakið er aukinnar þátttöku einstaklinga.

„Ég held að sá atburður á árinu sem skiptir hvað mestu máli hafi verið útboð Icelandair Group í september og þar flykktust einstaklingar inn og það held ég að hafi verið svona ákveðin kveikja að aukinni þátttöku almennings,” segir Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands.

Fjöldi viðskipta með hlutabréf Icelandair Group í desember er sá mesti með eitt félag í einum mánuði frá upphafi. Þannig voru heildarviðskipti í desember 9.530 talsins, þar af tengdust 4.974 þeirra Icelandair.

„Við höfum ekki séð svona mikil viðskipti, í fjölda talið, með einstakt félag eins og Icelandair eins og í desember. Þetta er metmánuður í fjölda viðskipta með nokkurt hlutabréf fyrr og síðar.“

Mikill áhugi var á hlutafjárútboði Icelandair. Vísir/Vilhelm

Sögulega lágir stýrivextir sé stór ástæða þessarar þróunar og að markmið um hækkun frítekjumarks og útvíkkun yfir arðstekjur og söluhagnað hlutabréfa í skráðum félögum muni styðja við áframhaldandi þátttöku almennings.

„Þetta hefur verið í lægra móti á Íslandi en er að aukast hröðum skrefum á haustmánuuðm. Það væri ekki óeðlilegt ef þátttaka hér væri tvöfalt til þrefalt meiri ef maður lítur til nágrannalandanna; Norðurlandanna, Bretlands og Bandaríkjanna,” segir Magnús.

Þátttaka almennings skili atvinnulífinu tækifærum, og þá ekki síst í nýsköpun.

„Ég tel reyndar að þetta við séum að sjá forsmekkinn af því sem verða skal,” segir hann og bætir við að traust hafi aukist.

„Svo held ég að okkur hafi tekist auka traust á markaðnum. Það hefur tekist smám saman frá þessum árum sem nú eru liðin frá fjármálahruninu.”


Tengdar fréttir

Bréf í Icelandair hækkað um rúmlega þriðjung frá útboði

Verð á hlutabréfum í Icelandair hækkuðu í dag, þriðja daginn í röð, og er það nú um 37% hærra en í hlutafjárútboði sem var haldið fyrr í haust. Hækkunin kemur í kjölfar frétta af því að bóluefni gegn nýju afbrigði kórónuveiru sem lyfjarisinn Pfizer er með í þróun virðist ætla að gefa góða raun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×