Neville hlustaði ekki á ráðleggingar Ferguson og skömmu síðar var hann rekinn Anton Ingi Leifsson skrifar 26. mars 2020 20:00 Gary Neville er hann stýrði Valencia en það var skammgóður vermir. vísir/getty
Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United og stjóri Valencia á Spáni, segir að hann hafi hunsað ráðleggingar frá læriföður sínum Sir Alex Ferguson er hann stýrði Valencia. Neville tók við stjórnartaumunum hjá Valencia í desember árið 2015 en var rekinn fjórum mánuðum síðar. Hann vann einungis þrjá deildarleiki og fékk 7-0 skell gegn Barcelona í bikarnum. Neville vissi að nokkrir leikmenn liðsins vildu komast burt frá félaginu í janúar og hann segir að það hafi verið mistök að hlusta ekki á Ferguson og losa sig við þessa leikmenn. „Það var klárt að nokkrir leikmenn voru ósáttir. Ég hefði átt að taka stóra ákvörðun um þessa leikmenn sem voru ekki tilbúnir að skuldbinda sig gagnvart félaginu,“ sagði Neville í samtali við Off Script hlaðvarpið. „Ég man eftir að ég talaði við Sir Alex Ferguson snemma í ferlinu og hann sagði mér að ég ætti að losa mig við þessa leikmenn og þannig vernda sjálfan mig. Hann sagði að ég ætti bara að hafa leikmenn í búningsklefanum sem væru að stefna í sömu átt og ég.“ Gary Neville details Sir Alex Ferguson advice he ignored during ill-fated Valencia tenure https://t.co/nIGkdqgmGF— Mirror Football (@MirrorFootball) March 26, 2020 „Ég hlustaði ekki á hann. Ég talaði við nokkra af leikmönnunum og bað þá um að vera þangað til að tímabilinu lyki en þeir voru ekki ánægðir. Ég hunsaði ráðleggingar Ferguson og það er ekki mitt besta augnablik,“ sagði Neville. Neville starfar nú sem sparkspekingur hjá Sky Sports og rekur hótel í Manchester.
Spænski boltinn Mest lesið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Slátturvél tók á loft í Svíþjóð Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira