Fyrsta uppskriftin kemur frá Gústa kokki, sem áhorfendur fá að kynnast í þáttunum. Hann skorar á Valgerði Árnadóttur að taka við keflinu og elda einhvern góðan vegan rétt og deila svo uppskriftinni.
Uppskrift Gústa má finna hér fyrir neðan.
Hér er uppskrift að Harira súpu sem er Marokkósk grænmetissúpa. Hún er mjög hefðbundin súpa sem er borðuð á Ramadan og föstum hjá Ísraelum jafnt sem Aröbum. Næringarmikil og fersk súpa sem lætur manni líða vel. Fullkomin núna eftir veisluhöldin sem eru að baki.
Harira súpa
- 1 laukur í teningum
- 5 hvítlauksgeirar í sneiðum
- 3 stilkar sellerý í teningum
- 3 gulrætur í sneiðum
- 1/2 tsk túrmerik
- 1 tsk malað cumin
- 1/2 rauður chili
- 1 búnt steinselja söxuð
- 1 búnt koreander saxað
- 1 dós(450gr) niðursoðnir tómatar
- 1,75 lítrar grænmetissoð
- 1 bolli kjúklingabaunir
- 1 bolli rauðar linsubaunir(má nota grænar en súpan verður fallegri með rauðum)
- 1 tsk nýmalaður svartur pipar
- 2 sítrónur safi og zest
- 1 lime safi og zest
Aðferð:
Skera grænmetið og steikja það varlega í olíunni, ekki brúna. Bæta kryddum úti, svo tómötum og grænmetissoði. Sjóða rólega í 10 mín. Bæta í baunum og sjóða rólega í 30 mínútur. Sítrónur og lime. Smakka til með salti og pipar.

Hummus
- 2 bollar kjúklingabaunir
- 2 hvítlauksrif söxuð
- 1 msk Tahini
- 1/3 tsk cumin
- Klípa cayennepipar
- 1 lime safi og ze
- Smakka til með salti
Aðferð:
Allt í matvinnsluvél og blandað vel þar til kremað.

Naan brauð
- 2 bollar hveiti (hvernig hveiti sem we)
- 2 msk hrásykur
- 2 tsk ger
- 3/4 bolli volgt vatn (37 gráður)
- 1/2 tsk sjávarsalt
- 4 msk hreint vegan jógúrt
- 2 msk ólívuolía
Aðferð:
- Setjið gerið og sykurinn í volgt vatn og blandið vel.
- Látið standa á heitum stað í 20 mínútur
- Bætið öllu öðru í og hnoðið vel saman.
- Látið hefast í 60 mínútur.
- Gerið 40-50 gr kúlur og fletjið út með kökukefli.
- Steikið á pönnu eða grillið.